Neskirkja

 

Alfanámskeið

Postulasagan og upphaf kirkjunnar - ekki kennt í vetur

Kennari: Sr. Örn Bárður Jónsson

Postulasagan er eitt rita Nýja testamentisins. Höfundur hennar er talinn vera læknirinn Lúkas og er ritið sjálfstætt framhald af guðspjalli hans. Í Postulasögunni greinir höfundur frá tilurð kirkjunnar og þróun hennar á fyrstu áratugum eftir upprisu Jesú Krists. Hún er því stórmerk heimild um líf og trú frumsafnaðarins. Á námskeiðinu verður leitast við að fræða um helstu stef Postulasögunnar, guðfræði höfundar og þýðingu ritsins fyrir kirkjuna nú á tímum. Ritið er skemmtilegt aflestrar og áhugavert fyrir margra hluta sakir og því eru þátttakendur hvattir til að lesa það áður en námskeiðið hefst.

Fyrirkomulag verður það sama og á hinum vinsælu Alfanámskeiðum. Hvert kvöld hefst með léttri máltíð, þá verður kennt í eina klukkustund og síðan fara fram umræður í hópum. Mörg launþegasamtök greiða félögum sínum a.m.k. hluta námskeiðsgjaldsins gegn framvísun reiknings. Námskeiðsgjald kr. 8.000 og eru máltíðirar innifaldar.

Tími: Þriðjudagar frá 12. feb. – 11. mars. kl. 19-22. Samtals fimm skipti.

Skráning í síma 511 1560 eða á neskirkja@neskirkja.is.

 

Alfa-námskeið - ekki kennt í vetur

Alfa fer sigurför um heiminn. Um eða yfir 8 milljónir þátttakenda hafa sótt námskeiðið á s.l. 15-20 árum. Alfa er fyrir fólk sem leitar svara við tilvistarspurningum lífsins, fólk sem efast, trúir eða trúir ekki.

 

Alfa II - Líf á nýjum nótum - ekki kennt í vetur

Tilgangur Alfa II er að kynna á einfaldan hátt mikilvægt bréf í Nýja testamentinu fólki til gagns. Í Filippíbréfinu boðar Páll innihaldsríkt líf. Líf sem er áhugavert og gerir það að verkum að fólki finnst lífið svo sannarlega þess virði að lifa því.

Kennsluefnið er bókin Líf á nýjum nótum eftir Nicky Gumbel sem er höfundur Alfanámskeiðanna. Bókina verður hægt að kaupa í Neskirkju á afsláttarkjörum.
Nánari upplýsingar um Alfa er að finna hér.

 

Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · WP · Kerfi RSS