Guðsþjónusta 6. ágúst
Guðsþjónusta kl. 11:00 á Torginu í safnaðarheimili Neskirkju. Kaffi á boðstólnum fyrir nærstadda. Félagar í Kór Neskirkju syngja. Prestur er sr. Skúli S. ÓIafsson. Ef veðrið leikur við okkur verðum við úti í garði með helgihaldið.
Guðsþjónustur næstu sunnudaga
Guðsþjónusta 23. og 30. júlí kl. 11:00 á Torginu í safnaðarheimili Neskirkju. Kaffi á boðstólnum fyrir nærstadda. Félagar í Kór Neskirkju syngja. Prestur er sr. Skúli S. ÓIafsson. Ef veðrið leikur við okkur verðum við úti í garði með helgihaldið.
Messa og opnun sýningar
Torgið í Neskirkju þykir vera einn framsæknasti sýningarsalur hérlendis. Sunnudaginn 2. júlí kl. 11:00 opnar sýning Hulda Stefansdottir í þessu rými. Yfirskrift sýningarinnar er Jaðarstund/Marginal Moments. Listamaðurinn kemst svo að orði í kynningu: ,,Við erum á jaðarstund. Það liggur einhver tærleiki í loftinu á þessum stundum sumarsins. Án skugga engin [...]
Prjónamessa 25. júní
Prjónamessa í safnaðarheimili kl. 11. Messugestum velkomið að hafa með prjóna eða aðra handavinnu. Meðlimir í prjónahóp Neskirkju aðstoða við messuna. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. Gunnsteinn Ólafsson annast undirleik. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Messan verður með kaffihúsasniði. Setið við borð, kaffi og te í boði.
Guðsþjónusta og skírnarminning
Guðsþjónusta og skírnarminning kl. 11. Fjallað verður um skírnina og viðstöddum boðið að minnast eigin skírnar við skírnarfontinn. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Hressing og samfélag á torginu eftir guðsþjónustuna. Litir og blöð fyrir yngstu kynslóðina.
Kaffihúsamessa 11. júní
Það er komið sumar og við höfum kaffihúsamessu í safnaðarheimili Neskirkju kl. 11 eins og fyrri sumur. Setið við borð með kaffibolla og hressingu undir helgihaldinu. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng við undirleik Arngerðar Maríu Árnadóttur organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Ritningarlestrar dagsins leggja áherslu á að [...]
Messa á þrenningarhátíð 4. júní
Messa kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Umfjöllunarefni predikunar: Allt sem þú vildir vita um þrenningarhátíð en þorðir ekki að spyrja... Allir hjartanlega velkomnir. Litir og blöð á staðnum fyrir yngstu kynslóðina. Kaffi og samfélag [...]
Hvítasunnan í Neskirkju
Hátíðarmessa kl. 11 á hvítasunnudag. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Einsöngur Guðrún Lilja Kristinsdóttir og Silja Björk Huldudóttir. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Kaffi og samfélag á torginu eftir messu. Annar í hvítasunnu. Gróðurmessa kl. 18. Félagar úr Kór [...]
Sunnudagurinn 21. maí
Messa kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Kaffisopi og samfélag eftir messu á Torginu.
Vorhátíð sunnudaginn 14. maí
Vorhátíð barnastarfsins í Neskirkju hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar og leiðir stundina með Kristrúnu Guðmundsdóttur og starfsfólki barnastarfsins. Eftir guðsþjónutu verður fagnað í garðinum. Þar verður hoppkastali, andlitsmálning og fjör og Ari Agnarsson leikur á harmonikku. Starfsfólk Neskirkju [...]