Neskirkja starfar á grundvelli laga um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, annarra skyldra laga, starfsreglna og reglugerða sem eiga sér stoð í lögum.

Sem liður í kirkjulegu starfi eru gjarnan teknar myndir eða myndbönd úr kirkjustarfinu, en tilgangur slíkrar vinnslu er að vekja athygli á því starfi sem fram fer innan kirkjunnar. Neskirkja er ábyrgðaraðili vinnslunnar og fylgir lögum nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, við alla vinnslu myndefnis (framvegis nefnd persónuverndarlög). Sé efni birt á vefsíðunni www.kirkjan.is, er Biskupsstofa einnig ábyrgðaraðili varðandi þá birtingu og fylgir þá ákvæðum sömu laga. Þjóðkirkjan hefur samþykkt persónuverndarstefnu sem finna má á heimasíðu kirkjunnar.

Myndefni sem unnið er á vegum Neskirkju er birt á heimasíðu kirkjunnar, heimasíðu Þjóðkirkjunnar www.kirkjan.is, í fréttabréfum og eftir atvikum á samfélagsmiðlum. Vakin er athygli á því að kirkjan setur þó ekki lengur myndefni af börnum á samfélagsmiðla. Myndefni verður ekki heldur sent inn til fjölmiðla.

Með samþykki á þessum skilmálum lýsa forsjáraðilar yfir samþykki fyrir slíkri vinnslu í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga. Samþykkið gildir meðan barnið tekur þátt í safnaðarstarfi Neskirkju.

Heimilt er að draga gefið samþykki til baka hvenær sem er, skal það gert með skriflegum hætti. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á lögmæti vinnslu sem heimiluð er á grundvelli samþykkis fram að afturkölluninni, sbr. 3. mgr. 10. gr. persónuverndarlaga.

Miðað er við að börn, eldri en 12 ára, þurfi sjálf að veita samþykki fyrir vinnslu myndefnis og eru foreldrar því beðnir um að ræða samþykki þetta og fara yfir með barni sínu.

Samþykki þetta er ekki skilyrði fyrir því að geta tekið þátt í safnaðarstarfi Nessóknar.

Reglur um vinnslu myndefnis

Þegar um er að ræða opinbera viðburði í kirkjulegu starfi eru gjarnan teknar ljósmyndir eða myndbönd. Slík vinnsla er talin heimil, óháð því hvort samþykkis hafi verið aflað eða ekki.

Samþykki felur í sér:

  1. Heimilt er að taka myndefni af barninu í tengslum við safnaðarstarf Nessóknar.
  2. Heimilt er að birta myndefnið t.d. á vefsíðu kirkjunnar (neskirkja.is), þjóðkirkjunnar, (kirkjan.is), í fréttabréfum á vegum kirkjunnar eða að öðru leyti innan veggja kirkjunnar.
  3. Heimilt er að birta myndefnið í tengslum við auglýsingar kirkjunnar.