Neskirkja

 

Fermingar

Fermingar 2012

Fermingarfræðslan í Neskirkju 9. september 2011

Efni: Fundir með fermingarbörnum

Heil og sæl!

Fræðslukvöld 15. september!

Fræðslukvöld fyrir væntanleg fermingarbörn sem fædd eru í janúar til júní verður haldið fimmtudaginn 15. september. Kvöldið byrjar kl. 19.30 og stendur til kl. 21.00. Skyldumæting er á fræðslukvöldið.

Fræðslukvöld fyrir börn sem eru fædd í júlí til desember verður síðan hálfum mánuði síðar eða fimmtudaginn 29. september. Sama fyrirkomulag verður á þessu kvöldi.

Foreldrafundur 29. September!

Fundur með foreldrum/aðstandendum fermingarbarna verður fimmtudagskvöldið 29. september kl. 18-19 í safnaðarheimili Neskirkju - Torginu. Fermingarbörnin mæta ekki á þennan fund!

Messusókn í vetur

Fermingarbörnin mæti í eina messu í mánuði eða samtals í 8 skipti. Strax eftir messu vinna þau verkefni í kirkjunni. Þess er vænst að foreldrar og/eða forráðamenn sæki kirkju með börnum sínum. Fermingarbörnum er boðið að taka þátt í unglingastarfi, NeDó. Fundartími í vetur er á þriðjudögum kl. 19.30 og aldrei of seint að byrja.

Ath! Dagsetningar foreldrafunda eru rangar í bókinni Trú og líf á bls. 91. Eftirfarandi dagsetningar eru réttar:

29. september kl. 18 – 19 (fundur án barnanna)

10. nóvember kl. 18 – 19.30 (fundur með börnunum)

19. janúar kl. 18 – 19.30 (fundur með börnunum)

1. mars kl. 18 – 19 (fundur án barnanna)

Bestu kveðjur,

prestar og starfsfólk Neskirkju

Bréf frá því í maí 2011

Skráning fermingarbarna í Neskirkju er í síma 511-1560.
Hámarksfjöldi fermingarbarna í hverri messu er 25 börn og gildir reglan: Fyrstir koma, fyrstir fá. Skráning strax skiptir því máli.

Fermingar vorið 2012 verða sem hér segir:
Laugardaginn 31. mars kl. 11 og 13.30 (biðlisti)

Annan í páskum 9. apríl kl. 11

Sunnudaginn 15. apríl kl. 13.30

Fermingarnámskeið 14. - 19. ágúst 2011
Árlegt sumarnámskeið fermingarbarna var haldið 14. - 19. ágúst síðastliðinn og sóttu um 80 ungmenni námskeiðið. Námskeiðið fléttar saman hefðbundna fræðslu, leik og upplifun. Kennt er um grundvallaratriði kristinnar trúar og menningararfinn, sem íslensk þjóð hefur haldið í heiðri í þúsund ár. Ræddar verða algengar tilvistarspurningar og ýmis siðferðileg álitamál með það að markmiði að börnin verði betur búin undir framtíðina. Stuðst er við Biblíuna, verkefnabók og kvikmynd um ævi Jesú.

• Hver er ég?
• Hvaðan kem ég?
.• Hefur lífið einhvern sérstakan tilgang?
• Hvað verður um mig?
• Hver var Jesús Kristur?
• Hvaða máli skiptir Jesús Kristur og kenningar hans nú á dögum?
• Hvert er hlutverk kirkju og kristinnar trúar í samtímanum?
• Hvers vegna að lifa trúarlífi?
• Hvers vegna játar stór hluti mannkyns trú á Krist?

Vetrarnámskeið
Um 90% fermingarbarna sækja sumarnámskeiðið og ljúka meginhluta fræðslu í ágúst. En þess má vænta, eins og liðin ár, að nokkur verði erlendis eða kjósi fremur að sækja vetrarnámskeið. Þau koma í fræðslu einu sinni í viku allan veturinn fram að fermingu. Námsefnið er svipað og á sumarnámskeiðinu.

Staðfesting fermingardags er háð því að búið sé að greiða gjald kr. 15.000, en innifalið í því er fræðslugjald skv. ákvörðun ráðuneytis, kennslugögn, kyrtilleiga og annar kostnaður við fermingarfræðsluna.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu kirkjunnar: http://www.neskirkja.is/ og í síma 511 1560.

Ritningarvers má finna hér!

Kanntu þetta?

Fermingarlistar 2011 á mbl.is



 

Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · Kerfi RSS