Prestar Neskirkju, Örn Bárður og Sigurður Árni, birta á annálum sínum margt af því sem þeir flytja við athafnir eða hafa þegar birt á prenti. Vísanir á annálana er að finna í hægri slánni á forsíðu vefsins.
Örn Bárður Jónsson, 27/9 2006
Einhvern tímann heyrði ég haft eftir Churchill gamla fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands að hann hefði skilgreint golfíþróttina sem leik að tveimur kúlum - lítilli og stórri - og að kylfingurinn ætti að slá þá litlu. Skemmtileg túlkun á frábærum leik.
Áfram á annál Arnar Bárðar …
Örn Bárður Jónsson, 27/9 2006
Þetta kirkjumál er miklu skemmtilegra en ég átti von á sagði ein fermingarstúlkan í lok sumarnámskeiðs Neskirkju. Einn fermingardrengurinn kallaði upp: Jesús er frábær!
Lesa áfram …
Sigurður Árni Þórðarson, 27/9 2006
Messa og barnastarf á sama tíma. Séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur, prédikar og þjónar fyrir altari.
Lesa áfram …
Örn Bárður Jónsson, 27/9 2006
Kynning á Alfa-námskeiðinu í Neskirkju þriðjudaginn 3. október kl. 20. Kaffi og veitingar.
Lesa áfram …
Örn Bárður Jónsson, 18/9 2006
Í eltingaleik lífsins týnumst við ekki algerlega. Guð er í leiknum líka, leitar að okkur, kemur sjálfur, tekur okkur í fangið og blessar okkur. Bernskuleikurinn gengur upp í leik himinsins. Við finnum ekki Guð, heldur finnur Guð okkur.
Lesa áfram á trúmálavefnum …
Sigurður Árni Þórðarson, 11/4 2006
Brauð hefur margvíslega merkingu. Nesprestakall er t.d. gott bauð. Og á skírdagskvöld verður sérstakt brauð blessaðu og borið fram í messunni kl. 21.
Lesa áfram …
Rúnar Reynisson, 10/4 2006
Föstudagurinn í kyrruviku er langur og tilefnið ógnvekjandi. Í dagskrá í Neskirkju kl. 14 föstudaginn langa gefst tækifæri til að íhuga pínu Jesú Krists og manna á ýmsum öldum.
Lesa áfram …
Rúnar Reynisson, 10/4 2006
Hvað er fullt hús matar sem engar dyr eru á? Þannig var spurt í gamalli gátu sem einu sinni var vinsæl. Og svarið þekkja flestir: Eggið! Páskadagsmorgni í Neskirkju má að þessu sinni líkja við egg, fullt fæðu, bæði andlegrar og líkamlegrar.
Lesa áfram …
Rúnar Reynisson, 10/4 2006
Fermingar í Neskirkju hefjast laugardaginn 8. apríl en þann dag verður fermt kl. 11 og 13.30. Næsta ferming verður á Pálmasunnudag, 9. apríl kl. 13.30. Þá verður fermt kl. 11 á 2. í páskum og loks kl. 13.30 sunnudaginn 23. apríl. Á þessu vori fermast um 120 ungmenni í Neskirkju.
Lesa áfram …
Árni Svanur Daníelsson, 10/4 2006