Við skúrum heimlin og nú er komið að sálarþrifum. Jóhannes skírari kallar eftir iðrun í guðspjalli þriðja sunnudags í aðventu. Kirkjuganga gerir þér gott. Allir eru velkomnir kirkju og ekki síst þú!
Lesa áfram …
Sigurður Árni Þórðarson, 14/12 2006
Öllum er væntanlega ljóst að ekki er gerð krafa um það til kennara eða annarra starfsmanna skóla að þeir gefi upp lífsskoðanir sínar við ráðningu. Foreldrar og nemendur treysta því að . . . Úr pistli Arnar Bárðar í Vesturbæjarblaðinu í desember.
Örn Bárður Jónsson, 12/12 2006
Jólafundur foreldramorgnanna og sá síðasti á þessu misseri verður miðvikudaginn 13. desember. Sr. Sigurður Árni Þórðarson verður með jólahugvekju og gengið verður í kringum jólatréð. Herdís Storgaard, verkefnisstjóri Árvekni hjá Lýðheilsustöð, fallar um slysavarnir barna.
Rúnar Reynisson, 12/12 2006
í Neskirkju verður síðasta opna hús eldri borgara fyrir jól miðvikudaginn 13 des. Kaffiveitingar verða á Torginu kl. 15 og síðan mun Ellert B. Schram sjá um efni. Litli kórinn syngur undir stjórn Ingu J. Backmann. Undirleikari Reynir Jónasson.
Lesa áfram …
Sigurður Árni Þórðarson, 12/12 2006
En hvað segir þá kirkjan okkar um endalokin og hinsta dóm? Hvernig mun okkur reiða af í þessu drama dóms og heimsslita? Verðum við dæmd af verkum okkar? Skiptir máli hversu margar jólagjafir ég gef, hve miklu ég eyði í gjafir og góðgerðir? Krefst dauðinn þess sem lífið lánaði í líku hlutfalli og fésýslumennirnir Metúsalem og Pétur? . . .
Úr prédikun Arnar Bárðar 10. des. sem lesa má hér:
Örn Bárður Jónsson, 10/12 2006
Textar sunnudagsins eru magnaðir! Viltu undirbúa þig? Lestu þá: Jesaja 35.1-10, Hebr 10.35-37 og Markúsarguðspjall 13.31-37. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Neskirkju leiðir söng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kaffi og spjall eftir messu. Undirbúum jólin með því að sækja messur á aðventunni.
Örn Bárður Jónsson, 8/12 2006
Nýr jólasveinn virðist hafa verið á ferð í Neskirkju, þriðjudaginn 5. des. um kvöldmatarleytið og tekið forláta farsíma sóknarprestsins af Nokia E61 gerð sem er alhliða tölvusími. Í honum er dagbók og mikið af upplýsingum. Ef þú hittir kauða, láttu okkur þá vita.
Örn Bárður Jónsson, 7/12 2006
Ef þú hefur ekki tíma á aðventunni fyrir það, sem mestu máli skiptir, hefur þú aldrei tíma fyrir lífið. Lífshamingja undir ljósastaurum getur verið tál. Hugleiðing Sigurðar Árna 1. sunnudag í aðventu er hér.
Sigurður Árni Þórðarson, 6/12 2006
Í kvöld, þriðjud. 5. des. kl. 19-22, verður lokasamvera Alfa-námskeiðs sem staðið hefur yfir frá því í byrjun október. Næsta námskeið (Alfa 2) hefst væntanlega í byrjun febrúar 2007.
Örn Bárður Jónsson, 5/12 2006
Á næsta foreldramorgni, miðvikudaginn 6. desember, mun Ingibjörg Leifsdóttir hjúkrunarfræðingur koma í heimsókn og fjalla um svefn og svefnvandamál ungbarna. Foreldramorgnar eru alla miðvikudaga kl. 10.00.
Rúnar Reynisson, 5/12 2006