Meðlimir í Félagi Súðvíkinga og Álftfirðinga vestra munu sækja Neskirkju heim sunnudaginn 4. maí kl. 11 og vera þar við almenna messu safnaðarins. Að henni lokinni verður boðið upp á súpu, brauð og kaffi. Aðalfundur safnaðarins verður haldinn í safnaðarheimilinu kl. 12.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Prédikun sr. Arnar er hægt að lesa hér og hlusta á.
Örn Bárður Jónsson, 1/5 2008
Guðsþjónusta verður í Neskirkju á uppstigningardag, fimmtudaginn 1. maí, kl. 14. Dagurinn er helgaður öldruðum. Hjörtur Pálsson, skáld og cand theol prédikar. Litli-kórinn, kór eldri borgara, syngur undir stjórn Ingu J Backman sem jafnframt syngur einsöng. Organisti Reynir Jónasson. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari. Kaffiveitingar á Torginu í boði safnaðarins að guðsþjónustu lokinni.
Örn Bárður Jónsson, 30/4 2008
Upplýsingar á þessari slóð.
Örn Bárður Jónsson, 29/4 2008
Bæn er ekki pöntunarþjónusta. Maður tekur ekki upp tólið og pantar, svona svipað og þegar maður pantar pizzu úr Eldsmiðjunni eða spólu á amazon. Verslunarvæðum ekki bænina. Bæn er ástartengill. Prédikun Sigurðar Árna á bænadegi er á bak við smelluna.
Sigurður Árni Þórðarson, 27/4 2008
Á bænadeginum 27. apríl verður messað kl. 11. Fjöldi fólks þjónar, messuhópur, matarhópur og félagar úr kór Neskirkju. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara síðan til sinna starfa. Allir velkomnir.
Lesa áfram …
Sigurður Árni Þórðarson, 26/4 2008
Á næstkomandi fimmtudag munu Neskirkja, NeDó og skátafélagið Ægisbúar standa fyrir helgistund í Vesturbæjarlaug en ókeypis verður í sund þann dag. Um stundina sjá Sigurvin Jónsson og Aðalsteinn Þorvaldsson, auk unglingaleiðtoga en Ari Agnarsson mun spila sumarlög. Eftir stundina verða leikir og sprell fyrir krakkana. Allir velkomnir
Sigurvin Jónsson, 22/4 2008
Messa og barnastarf sunnudaginn 20. apríl kl. 11. Sr. Örn Bárður prédikar og þjónar fyrir altari.
Prédikunina er hægt að hlusta á hér.
Lesa áfram …
Örn Bárður Jónsson, 20/4 2008
Það skal viðurkennt að fyrirsögnin sé dálítið mótsagnarkennd. Þannig er nú margt í lífinu. Kyrrð á hávaðasömum tímum er viss mótsögn en hún er samt möguleg. Laugardaginn 19. apríl kl. 10-16 verður haldinn kyrrðardagur í Neskirkju þar sem trappistamunkurinn, William Meninger, flytur hugvekjur og kynnir íhugunar- og hugleiðsluaðferðina Centering Prayer.
Skráning í s. 511 1560 eða á neskirkja@neskirkja.is
Lesa áfram …
Örn Bárður Jónsson, 17/4 2008
Tannheilsa ungra barna verður umræðuefni á foreldramorgni fimmtudaginn 17. apríl. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10 - 12.
Rúnar Reynisson, 15/4 2008
Í opnu húsi miðvikudaginn 16. apríl mun Svavar Sigmundsson cand.mag., stofustjóri örnefnastofu Árnastofnunar, segir frá athugunum sínum á gömlum bænabókum og fræðir um þær. Kaffiveitingar á Torginu. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15.
Rúnar Reynisson, 15/4 2008