Neskirkja

 

Helgihald

Helgihald í kyrruviku og um páska

Skírdagskvöld

Messa kl. 20.00. Heilög kvöldmáltíð með sérbökuðu brauði. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists. Háskólakórinn syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.

Föstudagurinn langi

Guðsþjónusta kl. 11.00. Píslarsagan lesin. Hallveig Rúnarsdóttir syngur einsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Þórhildur Ólafs.

Páskadagur

Hátíðarmessa kl. 8.00. Hátíðartón. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Þórhildi Ólafs.

Morgunverður og páskahlátur á milli messa

Upprisutónleikar kl. 10.00. Steingrímur Þórhallsson organisti flytur tónlist.

Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11.00. Hátíðartón. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Þórhildur Ólafs prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Erni Bárði Jónssyni. Páskaeggjaleit. Umsjón Sigurvin, María og Ari.

Annar í páskum

Fermingarmessa kl. 11.00. Prestar sr. Örn Bárður Jónsson og sr. Þórhildur Ólafs.

Messur

Messur alla sunnudaga kl 11:00 - ekkert kynslóðabil, allir aldurshópar saman. Börnin eru með í upphafi messunnar en fara síðan í safnaðarheimilið. Prestar safnaðarins skiptast á um að þjóna aðra hverja helgi. Kirkjukór Neskirkju leiðir söng safnaðarins undir stjórn organistans. Félagar úr Háskólakórnum syngja að jafnaði eina messu í mánuði yfir vetrartímann.

Bænamessur

Alla miðvikudaga eru fyrirbænamessur í hádeginu og hefjast kl. 12.15. Beðið er fyrir sjúkum og hverjum þeim sem þurfa á fyrirbæn að halda. Einnig er altarisganga. Þessar stundir eru 20 mínútna langar. Þeir sem vilja láta biðja fyrir sér eða öðrum geta komið bænarefnum áleiðis til prestana í gegnum tölvupóst eða símleiðis.

Hjónavígslur

Nokkur orð um kirkjulega hjónavígslu

Útfarir

Ritúal og sálmar við útfarir

 

Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · WP · Kerfi RSS