Kór Neskirkju heldur seinni vortónleika sína í Neskirkju miðvikudagskvöldið 4. júní, kl. 20:00. Enginn aðgangseyrir. Eftir tónleikana verður hin árlega sumarblómasala til styrktar kórnum. Blómin, eins og kórinn, koma sem fyrr úr umhyggjusamri ræktun kórstjórans.
Á efnisskrá tónleikanna kennir margra grasa, angurvær íslensk vorlög og þjóðlög í bland við verk þekktra evrópskra 16. aldar tónskálda. Meðal verka má nefna útsetningar Hafliða Hallgrímssonar á þjóðlögunum „Veröld fláa sýnir sig“ og „Hættu að gráta hringaná ásamt „Vorvísu“ Jóns Ásgeirssonar. Af verkum erlendra tónskálda má nefna krafmikið tveggja kóra verk „Psalm 100“ eftir Heinrich Schütz, „Super flumina“ eftir G.P da Palestrina og „Sleep“ eftir Eric Whitacre. Síðast en ekki síst verður frumflutt „Faðir vor“ eftir stjórnanda kórsins. Tónleikarnir standa í um klukkustund og er öllum velkomið að koma og hlýða á fallega kórtónlist. Stjórnandi er Steingrímur Þórhallsson.