Mig langar svo á kyrrðardaga, en ég hef ekki tíma til að ganga í svoleiðis klaustur í þrjá daga! Kannski langar þig líka að njóta kyrrðar. En nú er tækifæri í boði, Kyrrðardagur í Neskirkju laugardaginn 4. nóvember. Eitthvað fyrir þig?
Mig langar svo á kyrrðardaga, en ég hef ekki tíma til að ganga í svoleiðis klaustur í þrjá daga! sagði kona við mig. En hvað segir þú um að nota einn laugardag fyrir kyrrðardag? spurði ég á móti. Niðurstaðan var sú að það væri hægt. Þess vegna er nú boðið til kyrrðardags í Neskirkju laugardaginn 4. nóvember. Dagskráin hefst kl. 10 árdegis og lýkur um 17,30.
Fjöldi fólks hefur sótt kyrrðardaga í Skálholti og uppgötvað hversu kyrrð og róleg hrynjandi tíðagerða og íhugana hefur góð áhrif. Stressað fólk nær meiri hvíld og slökun en á mörgum vikum á sólarströnd. Hinn innri maður fær allt í einu næði til að vera, sækja í sálardjúp, gaumgæfa innri spurningar og lífsmynstur sitt. Kyrrðardagar eru því tilefni og tækifæri til að dekra við allt sem er hið innra.
Kyrrðardagur í borg nýtir margt það sem kyrrðardagar bjóða en dagskrá er þéttari og aðlöguð aðstæðum kirkju í borginni. Dagskráin er blanda íhugana, bænagerðar, gönguferða og slökunar. Máltíðir eru verða á kaffitorgi Neskirkju.
Á kyrrðardegi Neskirkju munu prestarnir Halldór Reynisson og Sigurður Árni Þórðarson sjá um hugleiðingar og Áslaug Höskuldsdóttir, jógakennari, stýra slökun.
Fyrir hverja er kyrrðardagur Neskirkju? Fyrir alla, sem hafa áhuga á tilgangi eigin lífs, slökun og trú. Skráning er í Neskirkju. Kostnaður kr. 3500 og máltíðir innifaldar í því verði. Allir velkomnir.