Í barnamessu á páskadag var frumsýnd páskastuttmynd Krakkaklúbbsins sem ber heitið Upprisinn er hann Í myndinni léku börnin og túlkuðu píslarsögu Krists frá pálmasunnudegi til páskamorguns.
Í barnamessu á páskadag var frumsýnd páskastuttmynd Krakkaklúbbsins sem ber heitið Upprisinn er hann Í myndinni léku börnin og túlkuðu píslarsögu Krists frá pálmasunnudegi til páskamorguns.
Þetta er þriðja stuttmyndin sem hópurinn hefur gert og önnur sem er sýnd hér í kirkjunni í messu en stuttmyndin Leyfið börnunum að koma til mín var sýnd í kirkjunni á Æskulýðsdaginn 4. mars.
Krakkarnir tóku hlutverk sín mjög alvarlega og lögðu sig fram við að túlka og segja píslarsöguna. Í þessari mynd sá í fyrsta sinn stúlka úr hópnum um kvikmyndatöku ásamt okkur leiðtogunum.
Við erum sannarlega stollt af því hæfileikafólki sem hingað sækir kirkju.