Sunnudaginn 23. mars kl. 18.00 í Neskirkju. Ferill Bobs Dylan er undarlegt og ævintýralegt ferðalag, þar sem hvorki skortir innblástur, syndaföll eða siðaskipti. Ferðalög aðdáenda hans hafa ekki síður verið þyrnum stráð, og einkennst af glímu við að lesa skilaboð út torræðum kvæðunum og giska – oftast rangt – á hvað leiðtogi lífs þeirra myndi gera næst. Þeir séra Henning Emil Magnússon og Þorgeir Tryggvason ætla að hugsa upphátt um þennan merkilega listamann, skoða trúarlegt samhengi verka hans, og telja í nokkur lög ásamt fleira góðu fólki. Mögulega bjóðum við upp á Zimmermanbananabrauð undir erindum eða að þeim loknum.