Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Eftir sameiginlegt upphaf fer sunnudagaskólinn í safnaðarheimilið. Söngur, sögur og leikur í umsjá Karenar S. Helgadóttur, Karólínu B. Óskarsdóttur og Ara Agnarssonar sem leikur undir.
Í messunni syngja félagar úr kór Neskirkju og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Guðspjallið er skírn Jesú og því mun skírnin koma við sögu í predikuninni.
Hressing og samfélag á torginu að loknum stundunum, eins og venja er.