Krossgötur mánudaginn 24. mars kl. 13.00. Sigrún Jónsdóttir meistaranemi í sagnfræði. Þórunn Bjarnadóttir var eiginkona Sveins Pálssonar læknis og náttúrufræðings. Hún var 15 barn móðir, húsfreyja, yfirsetukona og stundum staðgengill manns síns við læknisstörf. Þegar almennar bólusetningar við hinni skæðu bólusótt hófust á Íslandi tók hún þátt í því verkefni, fór á milli bæja til að bólusetja og fylgdist með árangrinum. Þórunn lét ekki eftir sig skriflegar heimildir en henni bregður stundum fyrir í dagbókarfærslum Sveins. Í erindinu verða þær litlu svipmyndir nýttar til að lýsa lífi og störfum þessarar merku konu. Sigrún Jónsdóttir meistaranemi í sagnfræði.