Lokaviðburður menningarviku sem tileinkuð er Hallgrími Péturssyni eru kórtónleikar Kórs Neskirkju 2. nóvember kl. 17.00. þar sem flutt verða kórverk við texta sálmaskáldsins.
Á dagskrá verður Kvöldvers eftir Tryggva Baldvinsson, Ölerindi eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Fyrir mig Jesú þoldir þú eftir Sigurð Sævarsson, ásamt verkum eftir Jón Leifs, Hildigunni Rúnarsdóttur, Báru Grímsdóttur og Jakob Tryggvason. Einnig verða frumflutt þrjú ný kórverk eftir Steingrím Þórhallsson kórstjóra við textana Á minni andlátsstundu, Málshátt hafði og Nú hef eg mig í hvílu mín.
Einleikur á flautu Pamela De Sensi.
Á milli verka flytja kórfélagar texta sem Þorgeir Tryggvason textasmiður og dr. Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur Neskirkju hafa tekið saman.
Aðgangur er ókeypis.