Guðsþjónusta og opnun myndlistarsýningar Erlu S. Haraldsdóttur fer fram í Neskirkju sunnudaginn 23. júní kl. 11:00. Fjallað verður um verkin í predikun. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Í framhaldinu gefst fólki tækifæri til að ganga um á Torginu og njóta sýningarinnar. Ef veður leyfir fer helgihaldið fram í garðinum við safnaðarheimilið. Kaffisopi.