Á sunnudag var vel sótt fjölskylduguðsþjónusta í Neskirkju en Barnakór kirkjunnar leiddi söng undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur og við undirleik Ara Agnarssonar. Ein fermingarmóðir, Inga Dóra Björnsdóttir, deildi með okkur upplifun sinni af stundinni í ljóði sem gladdi okkur starfsfólkið mjög.
Sem fermingarmamma ég mæti í kirkju.
sybbin og pirruð að ger’essa skyssu.
Aftast ég settist og opnaði símann
og vonaðist til þess að drepa nú tímann.Í kirkjunni eru fjöldi manns
Því jólin þau koma nú innan skamms,
Litlar stelpur syngja jólalög í sparikjólunum
og presturinn les söguna um tröllið sem stal jólunum.Lítið barn fær blessun og nafn
Hún er yngsti meðlimur í guðshirðarsafn.
Á kertum er tendrað og bænin er lesin
og heilagur andi hríslast um „fésin“Ef messan er svona með gleði og söngvum
með hlátur og tiplandi börnum á göngum
af hverju fer ég þá sjaldan í messu
af hverju er mín barnstrú í klessu