Viltu ná sambandi? Ekkert gjald meðan beðið er hjá símanum og ekki heldur í kirkjunni. Í forkirkju Neskirkju eru ljósaker og margir koma til að kveikja á kertum og njóta kyrrðarstundar. Fyrirbænamessa er á miðvikudögum kl. 12.15.
Viltu ná sambandi? Ekkert gjald meðan beðið er hjá símanum og ekki heldur í kirkjunni. Kirkjan er ekki aðeins opin á sunnudögum heldur líka hvunndags. Ljós lifir á altari Neskirkju flesta daga og kallar til bæna. Í forkirkjunni eru ljósaker og margir koma í kirkjuna til að kveikja á kertum og njóta kyrrðarstundar.
Í hverri viku ársins er fyrirbænamessa á miðvikudögum kl. 12.15. Messan tekur um 20 mínútur. Við upphaf er leikið á orgel og klukkum hringt. Síðan er sunginn sálmur, lesinn ritningartexti og prestur flytur örhugvekju. Eftir fyrirbænir er altarisganga. Mörgum þykir gott að geta gengið í guðshús í miðri viku og þegið sakramenti. Að messu lokinn getur fólk fengið sér hressingu á Torginu, súpu og brauð, kaffi og meðlæti. Beiðni um fyrirbæn má koma til prestanna.
Í kirkjuna er gott að koma, ekkert gjald er tekið meðan beðið er. Svo er sambandið gott, rofnar aldrei og flutningsgetan mikil!