Fjölskylduguðsþjónusta 12. nóvember
Fjölskyldumessa kl 11. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar ásamt leiðtogum barnastarfsins, Kristrúnu, Nönnu og Ásdísi. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Barnakór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur syngja. Samfélag og kaffiveitingar á Torginu eftir stundinna.
Dómkirkjan í Reykjavík
Krossgötur þriðjudaginn 7. nóvember kl. 13. Við förum í niður í Dómkirkju þar sems sr. Svein Valgeirsson, Dómkirkjuprestur, leiðir okkur um húsakynnin og segir sögu þessarar merku byggingar. Kaffiveitngar. Lagt verður af stað frá Neskirkju kl. 13.00 með rútu.
Allra heilagra messa
Messa kl. 11 sunnudaginn 5. nóvember. Barnastarfið er á sínum stað. Félagar úr Háskólakórnum syngja undir stjórn Helgu Marsellíusardóttur. Kristín Jóhannesdóttir er við hljóðfærið. Við minnumst látinna í hljóðri bæn. Kaffi á torginu að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Siðaskiptin
Krossgötur þriðjudaginn 31. október kl. 13.00. Skúli S. Ólafsson, prestur í Neskirkju, fjallar um siðaskiptin á Íslandi og hvernig þau endurspegla straumhvörf valda og hugmynda í álfunni á 16. öld. Kaffiveitingar.
Messa 29. október
Messa og barnastarf kl 11:00. Sr Helga Kolbeinsdóttir þjónar. Organisti er Douglas Brotchie. Félagar úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Sunnudagaskóli í umsjón Kristrúnar æskulýðsfulltrúa ásamt leiðtogum. Kaffi og samfélag eftir messu.
Mitt hjartans mál
Krossgötur þriðjudaginn 24. október kl. 13.00. Þórdís K. Ágústsdóttir, ljósmóðir til 40 ára, ræðir ljóðabók sína: Mitt hjartans mál. Kaffiveitingar.
Bleik guðsþjónusta
Guðsþjónusta, í tilefni bleiks októbers, og barnastarf sunnudaginn 22. október kl. 11.00. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Barnastarfið er á sínum stað í umsjá Ásdísar, Nönnu og Ara. Að messu lokinni verða kaffiveitingar á Torginu og bleikir sokkar seldir til styrktar Krabbameinsfélaginu.
Hallgrímur Pétursson
Krossgötur þriðjudaginn 17. október kl. 13.00. Margrét Eggertsdóttir, rannskóknarprófessor á Árnastofnun, kynnir fimmtu útgáfuna af verkum Hallgríms Péturssonar, en hún kemur í verslanir nú á haustdögum. Kaffiveitinar.
Sr. Örn Bárður Jónsson messar
Messa og barnastarf sunnudaginn 15. október kl. 11:00. Sérstök ánægja er að bjóða sr. Örn Bárð Jónsson, fyrrum sóknarprest kirkjunnar velkominn, en hann messar að þessu sinni í forföllum prestanna. Sönghópurinn Marteinn syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Barnastarfið er á sínum stað í umsjá Kristrúnar, Nönnu og Ara. Kaffiveitingar [...]
Gott heilsufar
Krossgötur þriðjudaginn 10. október kl. 13.00. Gríma Huld Blængsdóttir, öldrunarlæknir, gefur heilræði um hollustu og gott heilsufari. Kaffiveitingar að vanda.