Alla sunnudaga kl. 11.00
september til maí.
Umsjón með sunnudagaskólanum hafa sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, Hilda María Sigurðardóttir og Smári Arnarsson, guðfræðinemar, Kristrún Guðmundsdóttir og Hrafnhildur Guðmundsdóttir. Ari Agnarsson, tónlistarmaður leikur undir.
Metnaðarfullt sunnudagaskólastarf dregur fjölskyldur til kirkjunnar og er vettvangur fyrir dýrmætar samverustundir með ástvinum sínum í kirkjunni. Í sunnudagaskólanum er lögð áhersla á samfellu og stöðugleika í starfinu en enginn sunnudagur fellur úr að vetri. Rebbi refur og Mýsla mús verða tíðir gestir í sunnudagaskólanum í vetur.
Við hlökkum til að sjá ykkur!