Rafræn skráning
Fermingarfræðsla í Neskirkju
2024 til 2025
Fermingardagar 2025
Sunnudagur 30. mars kl. 13.30
Laugardagurinn 12. apríl kl. 11.00 og 13.30
Annar í páskum 21. apríl kl. 11.00
Skráning hefst um miðjan maí
Dagskrá vetrarins – með fyrirvara!
Fermingarveturinn hefst með messu og fræðslu eftir messu 18. ágúst
Námskeið í ágúst:
- Messa, grill fyrir fermingarbörn og upphaf fræðslu kl. 11 – 15
- Námskeið: Mánudaginn 19. – miðvikudagsins 21. ágúst kl. 10 – 15
- Sunnudaginn 25. ágúst kl. 11: Messa fyrir fermingarbörn og foreldra. Góðursetning eftir messu í Heiðmörk
Vetranámskeiðið byrjar 30. ágúst – fyrirkomulag auglýst síðar!
Þann 13.-15. september er helgarferð í Vatnaskóg.
Fermingardagar 2025
Sunnudagur 30. mars kl. 13.30
Laugardagurinn 12. apríl kl. 11.00 0g 13.30
Annar í páskum 21. apríl kl. 11.00
Sumarnámskeið 18. – 21. ágúst 2024
Messa, grill fyrir fermingarbörn og upphaf fræðslu kl. 11 – 15.
Fræðsla mánudag – miðvikudags milli kl. 10 og 15. Fermingarbörn koma með skriffæri. Kennslugögn verða afhent í kirkjunni. Mætingarskylda alla dagana. Léttur hádegisverður og síðdegishressing.
Messa 25. ágúst
Messa kl. 11 árdegis er hluti af námskeiðinu. Í framhaldi fara fermingarbörn og foreldrar með prestum í Heiðmörk þar sem tré verða gróðursett.
Vetranámskeið (Fyrir þau sem ekki komust á sumarnámskeiðið).
Fræðsla fyrir þau sem ekki gátu sótt námskeiðið í ágúst að öllu leyti Nánari upplýsingar verða gefnar þegar nær dregur.
Ferðalag í Vatnaskóg 13. – 15. september
Lagt verður af stað frá Neskirkju kl. 17 föstudaginn 13. september. Komið heim seinnipartinn, sunnudaginn 10. september.
Messusókn í vetur
Fermingarbörn mæta í eina messu í mánuði (sept., okt., nóv., des., jan. og feb.) eða samtals í 6 skipti sem hluta af fermingarnámskeiðinu. Eftir messu vinna þau verkefni í kirkjunni. Þess er vænst að foreldrar sæki kirkju með börnum sínum.
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar 2. mars
Æskulýðsmessa kl. 11. Vænst er þátttöku fermingarbarna.
Söfnun – hjálparstarf
Þriðjudaginn 5. nóvember safna fermingarbörn fé til stuðnings Hjálparstarfi kirkjunnar.
Fræðslukvöld í kirkjunni
Yfir veturinn verða fjögur fræðslukvöld. Á tveimur þeirra er einnig vænst þátttöku foreldra.
Dagsetningarnar eru:
- 19. september, fimmtudagur, kl. 18.00 – 19.30
- 29. október, þriðjudagur, kl. 18.00 – 19.30 (foreldrar og börn)
- 14. janúar, þriðjudagur, kl. 18.00 – 19.30 (foreldrar og börn)
- 27. febrúar, fimmtudagur, kl. 18.00 – 19.30
Foreldrafundir
Efnt verður til fjögurra samvera með foreldrum. Fundirnir eru vettvangur til að fara yfir samskipti við unga fólkið, ræða trú, samfélag, siðferði sem og ferminguna sjálfa.
Dagsetningarnar eru:
- 12. sept., fimmtudagur, kl. 18-19 (fundur án barnanna)
- 29. október, þriðjudagur kl. 18-19.30 (fundur með börnunum)
- 14. jan. þriðjudagur kl. 18-19.30 (fundur með börnunum)
- 20. mars, fimmtudagur, kl. 18-19 (fundur án barnanna)
Æfings fyrir fermingarathafnir
28. mars, föstudagur, kl. 14.00 fyrir 30. mars
11. apríl, föstudagur, kl. 14.00 og fyrir 12. apríl kl. 11.
11. apríl, föstudagur, kl. 15.00 og fyrir 12. apríl kl. 13.30.
16. apríl, miðvikudagur kl. 13 fyrir fyrir 2. páskum, 21. apríl
Skyldumæting!
Biblíuvers
Fermingarbörnin mega að velja sér Biblíuvers sem lesin eru við fermingarathöfnina. Hægt er að velja hvaða vers sem er úr Biblíunni. Á heimasíðu kirkjunnar neskirkja.is er hægt að finna fjöldann allan af ritningarversum sem hægt er að nota.
Viðtal
Börnin verða kölluð til viðtals eftir áramót. Fyrirkomulagið verður kynnt síðar.
Kanntu þetta
Á bls. 94? í bókinni eru atriði sem börnin þurfa að kunna fyrir fermingu.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma kirkjunnar 511 1560 eða með því að senda fyrirspurnir á netfangið runar@neskirkja.is.
Upplýsingar verða settar jafnóðum á facebook síðuna Neskirkja-foreldrar fermingarbarna 2024-2025
Verð fyrir fermingarfræsluna er 40.000 innifalið í því eru námsgögn, næring á námskeiðum, ferð í Vatnaskóg, kyrtlaleiga og annar kostnaður við fræðsluna.