Hinir árlegu saltfiskdagar hefjast á ný á Kaffitorgi Neskirkju föstudaginn 12. febrúar kl. 12. Reiddur verður fram suðrænn saltfiskur sem Ólafía Björnsdóttir mátráður Neskirkju eldar.
Fastan stendur í 7 vikur, er forn hefð þar sem fólk er hvatt til að íhuga líf Krists, þjáningu hans og dauða. Föstur eru þekktar innan flestra trúarbragða. Kristnir menn hafa fastað á kjöt sbr. kjötkveðjuhátíð sem markar upphaf föstunnar.
Saltfiskur hefur verið útflutningsvara Íslendinga í mörg hundruð ár. Það er af trúarlegum ástæðum. Kaþólskt fólk í Evrópu og víðar dregur úr kjötneyslu eftir kjötkveðjuhátíðina og borðar meiri fisk á föstunni en aðra tíma ársins.