Þetta er gott brauð, sem þið notið við altarisgönguna var sagt í Neskirkju eftir skírdagsmessu. Það var ósýrt, þunnt, pönnusteikt brauð og þannig brauð hefur Jesús líklega brotið og útdeilt í síðustu kvöldmáltíðinni. Upppskriftin er einföld.
„Þetta er gott brauð, sem þið notið við altarisgönguna var sagt í Neskirkju eftir skírdagsmessu. Það var ósýrt, þunnt, pönnusteikt brauð og þannig brauð hefur Jesús líklega brotið og útdeilt í síðustu kvöldmáltíðinni.
Af hverju ósýrt brauð á skírdag? Ástæðan var flýtir hinna fornu hebrea er þeir flýðu Egyptaland. Ekki tókst að undirbúa brauðbaksturinn áður en þotið var af stað og því varð að baka óhefað brauð.
Í 2. Mósebók 12:39 segir: „Og þeir bökuðu ósýrðar kökur af deiginu, sem þeir höfðu með sér úr Egyptalandi, því að deigið hafði ekki sýrst, þar eð þeir voru reknir burt úr Egyptalandi og máttu engar viðtafir hafa og höfðu því ekkert búið sér til veganestis.“ Gyðingar allra alda hafa síðan minnst framhjágöngu engilsins og brottfararinnar með hátíðahaldi um páska.
Uppskrift ósýrðs brauðs er einföld og brauðið fljótbakað.
2 bollar af spelt-hveiti
¾ bolli kalt vatn
2 matskeiðar ólívuolía
1 teskeið salt
Blandið hveiti, olíu, salti og vatni saman, hnoðið í þrjár mínútur. Skiptið í 8 hluta. Fletjið hvert stykki í þunna hringlaga köku og stingið hana sem víðast með gafli. Best er að steikja á pönnu, en einnig hægt að baka í ofni við 250°C í 10 mínútur. Pottpanna, þ.e. flatkökupanna, gafst mér vel. Athugið, að steikingarhátturinn skiptir máli hvað varðar bragð. Ef nota á brauðið sem matarviðbit er hægt að krydda það með hvítlauk, sesam eða öðru því kryddi, sem fólki líkar best.
Við getum sem best endurlifað síðustu kvöldmáltíð Jesú með því að nota sams konar brauð og hann og notið þar með allrar táknhefðarinnar, bæði úr Nýja testamenntinu og hinu gamla líka.
Árni Svanur Daníelsson, vefstjóri kirkjunnar, tók viðtal um brauðið góða og notkun þess og birti á kirkjan.is. Smellið hér.