Tónlist
Tónlistarstarf
Tónlistarstarf Neskirkju er fjölbreytt. Steingrímur Þórhallsson organisti stýrir tónlistarstarfi kirkjunnar. Hann stýrir jafnframt Kór Neskirkju en meginverkefni hans er að leiða safnaðarsöng í kirkjunni og að flytja margs konar tónlist við kirkjuathafnir og á tónleikum. Við Neskirkju starfar einnig barnakór, stúlknakór og Litli Kórinn, kór eldri borgara.
Kór Neskirkju
Hann æfir á miðvikudögum klukkan 19:00 til 22:00 auk raddæfinga einn laugardagsmorgun í mánuði. Sjá nánarari umfjöllun um Kór Neskirkju hér fyrir neðan
Kórinn getur alltaf bætt við sig efnilegu og áhugasömu söngfólki og fást allar upplýsingar í síma 896-8192 eða hjá steini@neskirkja.is
Barnakór og stúlknakór
Hafa verið starfræktir í kirkjunni undanfarin ár. Barnakórinn er ætlaður börnum í 1 – 4 bekk og æfir hann á fimmtudögum kl. 14:00-14:45. Stjórnandi barnakórsins er Björn Thorarensen. Stúlkakórinn er ætlaður stúlkum í 4 – 7 bekk. Hann æfir á miðvikudögum kl. 14:45-15:45. Stjórnandi stúlknakórsins er Steingrímur Þórhallsson. Upplýsingar fást í síma 896-8192, hjá steini@neskirkja.is og í síma kirkjunnar 511-1560.
Litli kórinn
Kórstarfið er ætlað hressu fólki á aldrinum 60 ára eldri. Æfingar eru í safnaðarheimili kirkjunnar á mánudögum kl. 14.00 til 16:00. Kórinn syngur í nokkrum messum í kirkjunni yfir veturinn og kemur fram á ýmsum samkomum eldri borgara á höfuðborgargarsvæðinu. Verkefni kórsins eru bæði sálmar og veraldleg lög. Stjórnandi er Inga J. Backman og undirleikari er Reynir Jónasson. Þau sem hafa áhuga á að syngja í kórnum hringi í stjórnandann í síma 552-2032.
Kór Neskirkju
Kór Neskirkju er safnaðarkór sem hefur verið undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, organista Neskirkju, frá árinu 2003. Meginverkefni kórsins eru að leiða safnaðarsöng í Neskirkju og að miðla margs konar tónlist við kirkjuathafnir og á tónleikum. Kórinn er áhugamannakór sem hefur vaxið og þroskast á undanförnum árum. Verkefnaskrá síðustu ára endurspeglar metnað og fjölbreytni.
Kórinn er samansettur af áhugasömum og söngelskum einstaklingum úr sókninni og fá meðlimir hans söngþjálfun innan vébanda kórsins. Haustið 2009 taldi hann um 40 einstaklinga, 25 konur og 15 karla.
Reglulegar æfingar eru frá seinnihluta ágústmánaðar fram til fyrrihluta júnímánaðar. Æfingar eru á miðvikudagskvöldum frá kl. 19:00 til 22:00. Tvisvar í mánuði eru raddæfingar á laugardagsmorgnum frá kl. 09:00 – 12:00 og þá oftast fyrir hluta kórsins í einu. Að jafnaði er haldin ein æfingahelgi að hausti (október) og önnur eftir áramót (febrúar). Sú hefð hefur skapast að fara með æfingahelgina eftir áramót út úr bænum.
Um starfsárið 2008 – 2009 og verkefnin framundan
Tónleikar
Kór Neskirkju lagði land undir fót ásamt stjórnanda sínum og fór í tónleikaferð til Finnlands og Eistlands dagana 28. apríl – 5. maí 2008. Haldnir voru tónleikar í Temppeliaukion kirkjunni eða hinni margrómuðu Klettakirkju í Helsinki. Efnisskrá tónleikanna var mjög fjölbreytt. Fluttir voru íslenskir sálmar og ættjarðarlög og evrópskar módettur. Kórinn söng einnig við hefðbundna sunnudagsmessu í Pyhän Laurin kirkjunni í Vantaa, skammt utan við Helsinki. Tónleikaferðin tókst í alla staði frábærlega vel. Má það ekki síst rekja til góðs undirbúnings og hollustu kórfélaga við verkefnið.
Þann 30. maí 2008 fór kórinn í Skálholt og söng í Skálholtskirkju hluta af dagskránni úr tónleikaferðinni. Kór Skálholtskirkju söng einnig.
Kórinn hélt aðaltónleika sína í Neskirkju 7. desember 2008. Á efnisskránni var jólatónlist frá ýmsum tímabilum og löndum, módettur o.fl. Einsöngvari á tónleikunum var Gissur Páll Gissurason, tenór. Til þess að heiðra minningu Ásdísar Einarsdóttur, kórfélaga, sem lést í október 2008 rann hluti af hverjum seldum aðgöngumiða á tónleikanna til hjálparstarfa í Malawi.
Kór Neskirkju tók þátt í Kórastefnu á Mývatni 4. – 7.júní 2009. Þar vann kór og stjórnandi með öðrum kórum, einsöngvurum, stjórnendum og hljómsveit. Kórinn flutti jafnframt eigin dagskrá í Dimmuborgum, ásamt öðrum þátttökukórum.
Í október 2009 hélt Kór Neskirkju tónleika í Dómkirkjunni og tók þannig þátt í tónlistardögum Dómkirkjunnar. Tónlistardagarnir voru helgaðir afmæli organista Dómkirkjunnar og af því tilefni frumflutti Kór Neskirkju kórverk eftir stjórnanda sinn sem hann samdi af þessu tilefni.
Í desember 2009 verða tónleikar í Neskirkju þar sem Messías eftir G.F. Händel verður fluttur ásamt einsöngvurum og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna.
Vorið 2010 ráðgerir kórinn tónleikaferð til Suður-Ítalíu.
Æfingar
Seinnihluti vetrar og vorið 2008 voru æfingar til undirbúnings tónleikaferðar til Helsinki og Tallinn í lok apríl fyrirferðamestar. Æfingabúðir voru haldnar að Sólheimum í Grímsnesi helgina 15. – 17. febrúar 2008.
Æfingar haustsins byrjuðu seinni partinn í ágúst og æfingahelgi var haldin í Neskirkju 17. og 18. október 2008. Æfingatíma haustsins var varið í að æfa dagskrá tónleika á aðventu en auk þess var æft efni í tengslum við messusöng á jólum og áramótum.
Um haustið byrjaði kórinn einnig að fást við nokkra kafla úr Messíasi Händels þar sem kórstjóri hafði ákveðið að flytja verkið í desember 2009. Æfingahelgi var haldin í Skálholti 20. – 22. febrúar 2009. Æfingahelginni lauk með því að kórinn sá um messusöng í Skálholtskirkju á sunnudagsmorgni. Í mars og apríl báru æfingar keim af páskum og væntanlegum fermingum. Í lok apríl var Händel lagður til hliðar til þess að rýma fyrir Schubert, en messa hans í As-dúr var flutt á Kórastefnunni við Mývatn í byrjun júní. Messías var síðan aftur tekin á dagskrá í haustið 2009 í síðustu æfingalotu fyrir tónleikana í desember 2009.
Messur
Árið 2008 söng Kór Neskirkju við 50 hefðbundar sunnudagsmessur, 5 fermingamessur og 8 hátíðarmessur. Kórinn söng einnig í messum í Tallinn og Vantaa árið 2008 og í Skálholti 2009.
Stjórn og skipulag
Stjórn Kórs Neskirkju er kosin á aðalfundi og stýrir hún öllum málefnum félagsins og gætir hagsmuna þess á grundvelli samþykkta kórsins í samvinnu við kórstjóra. Stjórn er skipuð 5 félagsmönnum; formanni, ritara, gjaldkera og 2 meðstjórnendum. Aðalfundur kósins er í mars á hverju ári og var síðasti aðalfundur 13. mars 2009. Raddformenn eru kosnir á aðalfundi.
Organisti og stjórnandi Kórs Neskirkju
Steingrímur Þórhallsson fæddist árið 1974 og ólst upp á Húsavík þar sem hann hlaut sína fyrstu tónlistarmenntun við Tónlistaskólann á Húsavík. Sautján ára flutti hann til Reykjavíkur og lauk píanókennaraprófi 1998 frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir leiðsögn Önnu Þorgrímsdóttur, píanókennara og kantorsprófi frá Tónskóla Þóðkirkjunnar með Martein H. Friðriksson dómorganista sem orgelkennara. Þá um haustið lá leiðin til Rómar í Kirkjutónlistarskóla Páfagarðs og útskrifaðist hann þaðan 2001 með Magistero di organo. Þar var hans aðalkennari Giancarlo Parodi.
Haustið 2002 var hann ráðinn organisti við Neskirkju eftir að hafa starfað um tíma sem skólastjóri Tónskólans á Hólmavík. Steingrímur hefur víða komið fram á tónleikum, m.a. á tónlistardögum Dómkirkjunnar, í Hallgrímskirkju, Skálholti, Selfossi og í Reykholti.
Steingrímur stýrir tónlistarstarfi Neskirkju og er stjórnandi tónlistarhópsins Rinascente sem sérhæfir sig í endurreisnartónlist.
Orgelið
Orgelið í Neskirkju var smíðað af þýsk-bandaríska orgelsmiðnum Fritz Noack árið 1999 í Boston og er það annað orgel kirkjunnar. Fyrsta orgelið í Neskirkju var keypt þegar kirkjan var byggð. Það var 21 radda og að einhverju leyti búið til af vanefnum og vankunnáttu. Það var orðið nokkur dyntótt hin síðustu ár. Biskup Íslands, hr. Karl Sigurbjörnsson, vígði nýja orgelið 19. september 1999. Orgelið er 31 radda rómatískt orgel og er þess vegna vel fallið til að leikið sé á það 19. og 20. aldar verk. Fritz Noack segir sjálfur um orgelið: „Það var fljótlega ákveðið að orgelið fyrir Neskirkju yrði að henta fyrir breitt svið orgeltónlistar, fyrir guðsþjónustur, undir kórsöng og fyrir tónleika góðra orgelverka.“ Orgelið sjálft er mjög nútímalegt að hönnun. Spilaborð orgelsins er skilið frá til þess að organistinn geti stjórnað kórnum en tengingar eru undir kórgólfinu. „Registur“ orgelsins eru rafstýrð og búin miklum stillingarmöguleikum. Orgel Neskirkju er sambland af klassísku evrópsku orgeli og amerísku 19. aldar orgeli.
Með tilkomu nýs orgels voru gerðar umfangsmiklar breytingar sem breyttu ásjón kirkjunnar nokkuð að innan. Söngsvalinar voru fjarlægðar, í staðinn fyrir teppi á gólfi kórsins kom steinn og panill á stóra kórveggnum var fjarlægður.