Neskirkja

 

Sunnudagaskóli


Alla sunnudaga kl. 11.00
september til maí.

Umsjón með sunnudagaskólanum hafa æskulýðsprestur Neskirkju Sigurvin Jónsson, Ása Laufey Sæmundsdóttir guðfræðinemi, Ari Agnarsson tónlistarmaður og Katrín Helga Ágústsdóttir.

Metnaðarfullt sunnudagaskólastarf dregur fjölskyldur til kirkjunnar og er vettvangur fyrir dýrmætar samverustundir með ástvinum sínum í kirkjunni. Í sunnudagaskólanum er lögð áhersla á samfellu og stöðugleika í starfinu en enginn sunnudagur fellur úr að vetri. Rebbi refur, Mýsla og Músapési verða tíðir gestir í sunnudagaskólanum í vetur og á hverjum sunnudegi er kíkt í fjársjóðskistu sem er uppspretta óþrjótandi ævintýra.

Allir velkomnir.

 

Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · Kerfi RSS