NeDó Graduate & Nörd
Graduate NeDó er leiðtogahópur Neskirkju og er ætlað fyrir ungleiðtoga á framhaldsskóla- og háskólaaldri. Starfið er á vegum Neskirkju en hópinn sækir töluverður fjöldi leiðtoga úr öðrum kirkjum sem alist hafa upp í æskulýðsstarfi. Graduate NeDó er sjálfráða og sjálfstæður hópur en æskulýðsprestur kirkjunnar er hópnum innan handar. Graduate NeDó heldur fundi á miðvikudögum kl. 20.00 í kjallara Neskirkju.
Annað hver fundur ber heitið NEDÓ NÖRD en þá eru spiluð spil sem stór hluti hópsins stundar. Þar er mest áberandi safnkortaspilið Magic the Gathering en einnig eru spiluð borðspil og hlutverkaspil.
Dagskrá:
- 31.08 - Skipulagsfundur
- 07.09 - NEDÓ Nörd
- 14.09 - Capture the flag
- 21.09 - NEDÓ Nörd
- 28.09 - Leiðtogafræðsla
- 05.10 - NEDÓ Nörd
- 12.10 - Katrín stýrir fundi
- 19.10 - NEDÓ Nörd
- 26.10 - L1 fundur
- 02.11 - NEDÓ Nörd
- 09.11 - Bjarni stýrir fundi
- 16.11 - NEDÓ Nörd
- 23.11 - Lasertag
- 30.11 - NEDÓ Nörd
- 07.12 - Ísak stýrir fundi
- 14.12 - NEDÓ Nörd
- 21.12 - Harpa stýrir fundi
- 28.12 - NEDÓ millijólaognýárs Nörd

