Fræðsla
Fræðslustarf
Haust 2009
Fræðslunámskeið á þriðjudögum kl. 18.00 - 20.30.
Í boði eru fjögur námskeið sem taka þrjú kvöld hvert. Námskeiðin byrja kl. 18.00 og líkur um kl. 20.30.
Sjálft námskeiðið kostar ekkert en boðið er upp á létta kvöldmáltíð sem kostar kr. 3000 fyrir öll kvöldin. Veitur er afsláttur ef tekin eru fleiri námskeið.
Upplýsingar og skráning í síma 511 1560 eða í netfangið: runar@neskirkja.is
Næsta námskeið hefst 17. nóvember: Guðfræði 101
Messan - saga, uppbygging, tákn og þjónusta leikmanna
15., 22. og 29. september
Hver er saga messunar? Hvers vegna er hún byggð upp á þennan hátt? Hvert er samhengið á milli mismunandi þátta hennar? Hvað er guðsþjónusta? Hvert er tákn sakramenntanna? Farið verður í uppbyggingu, tákn og þjónustu leikmanna.
Jákvæð sálfræði
6., 13., og 20. október.
Jákvæð sálfræði er ný grein í sálfræði sem rannsakar á vísindalegan hátt hvaða leið er best að fara þegar fólk vill bæta líf sitt og blómstra. Anna Jóna Guðmundsdóttir B.A.í sálfræði kennir.
Hér er síða sem Anna vísaði á http://www.authentichappiness.org
Fermingarfræðsla fyrir fullorðna
27. október, 3. og 10. nóvember
Fara yfir helstu atriði kristinar trúar. Sr. Örn Bárður Jónsson kennir.
Guðfræði 101
17., 24. nóvember og 1. desember.
Hvað er guðfræði? Hvers vegna skiptir máli að þekkja Biblíunna? Hvers konar bók er Biblían? Með námskeiðinu er stefnt að því að gefa innsýn í viðfangsefni guðfræðinnar, kynna bækur Biblíunnar og ítreka mikilvægi biblíuþekkingar til skilnings á umræðu samtímans. Kennarar: Sigurvin Jónsson, guðfræðingur og prestar kirkjunnar.
Foreldramorgnar
Ertu nýbúin/n að eignast barn? Á fimmtudagsmorgnum kl. 10-12 eru barnavagnar oft í röðum undir kirkjuveggnum. Á gólfinu í gamla safnaðarheimilinu eru dýnur og þar hjala ungbörn. Aðallega mömmur hafa sótt foreldramorgna en pabbar eru mjög velkomnir og vinsælir. Ert þú með ungbarn á heimilinu? Hvernig væri að koma og blanda geði við foreldra sem eru í sömu sporum?
Alfa-námskeið - ekki í vetur
Alfa fer sigurför um heiminn. Um eða yfir 8 milljónir þátttakenda hafa sótt námskeiðið á s.l. 15-20 árum. Alfa er fyrir fólk sem leitar svara við tilvistarspurningum lífsins, fólk sem efast, trúir eða trúir ekki.
Postulasagan og upphaf kirkjunnar - ekki í vetur
Kennari: Sr. Örn Bárður Jónsson
Postulasagan er eitt rita Nýja testamentisins. Höfundur hennar er talinn vera læknirinn Lúkas og er ritið sjálfstætt framhald af guðspjalli hans. Í Postulasögunni greinir höfundur frá tilurð kirkjunnar og þróun hennar á fyrstu áratugum eftir upprisu Jesú Krists. Hún er því stórmerk heimild um líf og trú frumsafnaðarins. Á námskeiðinu verður leitast við að fræða um helstu stef Postulasögunnar, guðfræði höfundar og þýðingu ritsins fyrir kirkjuna nú á tímum. Ritið er skemmtilegt aflestrar og áhugavert fyrir margra hluta sakir og því eru þátttakendur hvattir til að lesa það áður en námskeiðið hefst.
Fyrirkomulag verður það sama og á hinum vinsælu Alfanámskeiðum. Hvert kvöld hefst með léttri máltíð, þá verður kennt í eina klukkustund og síðan fara fram umræður í hópum. Mörg launþegasamtök greiða félögum sínum a.m.k. hluta námskeiðsgjaldsins gegn framvísun reiknings. Námskeiðsgjald kr. 8.000 og eru máltíðirar innifaldar.
Tími: Þriðjudagar frá 12. feb. – 11. mars. kl. 19-22. Samtals fimm skipti.
Skráning í síma 511 1560 eða á neskirkja@neskirkja.is.
12 sporin - ekki í vetur
Tólf sporin - andlegt ferðalag
Tólf sporanámskeiðin eru einn af vaxtarbroddunum í starfi þjóðkirkjunnar. Tólf spora vinna hentar þeim sem vilja vinna með tilfinningar sínar, öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu. Litlir hópar hafa reynst góður vettvangur fyrir þá vinnu. Aðferðin er sprottin upp úr starfi AA-hreyfingarinnar en í hinu kirkjulega samhengi er hún unnin í farvegi kristinnar trúar og ætluð öllum. „Vinir í bata“ er yfirskrift þeirra sem farið hafa í gegnum „Tólf sporin andlegt ferðalag.“ Heimasíðu þeirra má nálgast hér.