Aldraðir
Eldri borgarar
„Opið hús“ í Neskirkju
Allir eru velkomnir á opnu húsin á miðvikudögum kl. 15-17.
Samverur eru einkum ætlaðar fólki sem er sextíu ára og eldri en yngra fólk er líka velkomið. Hikið ekki við að taka með ykkur vini og kunningja. Klukkan 15 verður kaffi á Torginu, nema þá daga sem farið verður af bæ.
Dagskrá vormisseris 2010:
13. janúar
Bjargey Ingólfsdóttir hefur um árabil unnið við iðjuþjálfun og út frá því starfi sínu áttað sig á ýmsu sem betur má fara varðandi þjálfun líkamans. Á seinni árum hefur hún lært hönnun og hefur útfært hugmyndir sínar bæði þær sem hún hefur talið að gætu hjálpað fólki í daglegu lífi og einnig þær sem glatt gætu fólk frá útlitslegu nytjasjónarmiði. Bjargey talar við okkur og segir frá því hvernig hugmyndir hafa orðið að veruleika og sýnir okkur afrakstur hugmynda sinna.
20. janúar
Við hvað starfar djákni? Ragnheiður Sverrisdóttir segir okkur frá starfi djáknans en hún er verkefnisstjóri kærleiksþjónustu á Biskupsstofu.
27. janúar
Tjörvi Bjarnason segir okkur frá Bændasamtökunum. „Bóndi er bústólpi“. Þjóðin hefur haft það í huga um áraraðir og verið þakklát bændum víða um landið fyrir framlag þeirra til matargerðar og klæða. Tjörvi greinir okkur frá því hvers vegna bændur mynduðu með sér samtök, hvaða ávinningur var af því fyrir þá og ýmsu fleiru viðvíkjandi bændum og búskap.
3. febrúar
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson prófessor í Gamla testamentisfræðum við Háskóla Íslands ræðir um Jesaja 40-50 sem kallaður hefur verið „huggunarspámaður Gamla testamentisins“.
10. febrúar
Þorvaldur Halldórsson tónlistarmaður kynnir og syngur trúarlega söngva og veraldlega. Þorvaldur söng á sínum tíma lagið „ Á sjó“ og festi sig með því rækilega í hugum margra samlanda sinna, sem hafa notið þess ávallt síðan að heyra hann hefja upp raust sína. Þorvaldur starfar á vegum Reykjavíkurprófastsdæmanna og hefur á undanförnum árum tekið þátt í margvíslegu helgihaldi víða innan þeirra.
17. febrúar
Örn Sigurðsson arkitekt talar um skipulagsmál og lýðræði, sem hann hefur látið sig mjög varða.
24. febrúar
Inga Bachman kórstjóri og söngkona heimsækir okkur ásamt Litla kórnum, kór eldri borgara. Við fáum að kynnast því hvernig er að vera í Litla kórnum og hvernig lögin eru æfð frá grunni til þess að hljóma fullæfð fyrir áheyrendur. Kórinn syngur fyrir okkur lög sem hann hefur æft undanfarið og ef til vill fáum við að taka lagið með söngfuglunum.
3. mars
Ólafur Egilsson fv. sendiherra spjallar um íslensku utanríkisþjónustuna en innan hennar starfaði hann í fjóra áratugi og var m.a. sendiherra í London, Moskvu, Kaupmannahöfn og Beijing.
10. mars
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir segir okkur frá vandasömu starfi sínu. En hún gerir oft flóknar aðgerðir til þess að bæta líðan þeirra sem orðið hafa fyrir lýtum, sem gera þeim erfitt fyrir í daglegu lífi. Þórdís á langa menntun að baki og gerir okkur grein fyrir því hvernig menntunin og starfsreynslan hafa gert hana að því sem hún er í dag.
17. mars
Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prófessor fjallar um sjálfvalið guðfræðilegt efni. Dr. Arnfríður vígðist til Garðakirkju og var þar prestur um hríð, stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum og lagði m. a. áherslu á kvennaguðfræði. Hún er góður fræðimaður og hefur unnið mikið rannsóknar- og frumkvöðlastarf og varð fyrst kvenna prófessor við Guðfræðideild Háskóla Íslands
24. mars
Guðrún Lára Ásgeirsdóttur segir okkur frá tilurð bókarinnar „Öll þau klukknaköll“ sem kom út í haust og hún ritaði ásamt sr. Ágústi Sigurðssyni og Önnu Sigurkarlsdóttur og les úr bókinni. Bókin fjallar um veigamikið hlutverk prestkvenna, þátttöku þeirra í safnaðarstarfi og þjónustu við sóknarbörn. Hún segir frá lífi prestkvenna sem bjuggu við mismunandi aðstæður og gerðu það besta úr þeim á tímum sem gerðu ráð fyrir því að prestkonan legði fram starfskrafta sína umyrða- og launalaust.
7.apríl
Geir Guðsteinsson segir okkur frá lífi og starfi blaðamannsins, en Geir er m.a.ritstjóri Vesturbæjarblaðsins. Hann gerir okkur grein fyrir því hvernig óvæntir atburðir gera kröfu til skjótra úrlausna og viðbragðsflýtis um leið og skrifin þurfa að vera vönduð og greina rétt frá atvikum og aðstæðum.
14. apríl
Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur fjallar um bók sína um Auði djúpúðgu. Við fáum að kynnast því hvernig Vilborg varð fyrir þeim áhrifum af sögu landnámskonunnar að hún gat ekki vikist undan því að kynna sér sögu hennar, persónu hennar og umhverfi og skrifa um hana. Vilborg les fyrir okkur valda kafla úr bókinni.
21. apríl
Björn Pálsson skólastjóri Melaskóla segir okkur frá einu og öðru úr sögu skólans, sem nú hefur starfað í rúma hálfa öld.Í tilefni 50 ára afmælisins kom út vegleg bók sem geymir myndir af fjölmörgum nemendum skólans og kennurum auk alls kyns fróðleiks, sem glatt hefur margan vesturbæinginn.
28. apríl
Við förum í heimsókn Útvarpshúsið, litumst um innanhúss, fræðumst um sögu ríkisútvarpsins, upptökur, útsendingar og dagskrárgerð. Steinþór Ingi tekur á móti okkur og leiðir okkur um húsið í Efstaleitinu.
5. maí
Nýjar hugmyndir um gamla bók. Sigurvin Jónsson guðfræðingur og umsjónarmaður barna- og unglingastarfs Neskirkju fjallar um hvernig nútíma rannsóknir hafa breytt hugmyndum manna um Nýja testamentið.
12. maí
Friðrik Guðmundsson kaupmaður í Melabúðinni segir frá starfi sínu og samskiptum við viðskiptavini.
19. maí
Við heimsækjum Sólheima í Grímsnesi. Sr. Birgir Thomsen tekur á móti okkur í Sólheimakirkju, sýnir okkur vinnustofur og kertagerðina. Sr Birgir segir okkur frá fjölbreyttri starfssemi Sólheima og Sesselju, hugsjónakonunni sem ótrauð beitti sér fyrir því að starf var hafið á Sólheimum. Sölvi í Brekkukoti tekur á móti okkur í kaffi.