Neskirkja

 

Myndasýning sr. Franks

Í Opnu húsi miðvikudaginn 22. nóvember mun sr. Frank M. Halldórsson, fyrrverandi sóknarprestur í Neskirkju sjá um fundinn. Kaffiveitingar kl. 15. Dagskráin hefst kl. 15.30. Allir velkomnir.

Dagskrá haustið 2006 er hægt að nálgast hér.

Rúnar Reynisson, 20/11 2006

Fannfergi og kennimennska

Það hefur löngum blásið um Sigurbjörn Einarsson, biskup. Í gær var haldin hátíð til heiðurs þessum jöfri andlegra orðlista á tuttugustu öld. Það var eiginlega við hæfi að gert hefði byl og allt væri á kafi í snjó.

Lesa áfram …

Sigurður Árni Þórðarson, 20/11 2006

Nei eða já?

Trúin er ekki utan við lífið, heldur í lífsmiðju. Mannsýn Biblíunnar er um allt líf manna, líka skugga, illsku og afbrot - kemur okkur við. Efnið í prédikun næstsíðasta sunnudagsins er um bið og brúðkaup.

Lesa áfram …

Sigurður Árni Þórðarson, 19/11 2006

Tónað inn í aðventu

Hinn árlega tónlistarhátíð Neskirkju, Tónað inn í aðvetnu, hefst n.k. laugardag kl. 13.00 með sameiginlegum tónleikum ungs tónlistarfólks í Vesturbænum.

Lesa áfram …

Rúnar Reynisson, 15/11 2006

Vesturbæingar gefa brunna!

Þrjár ungar stúlkur komu í gættina, kynntu sig og sögðust vera safna fé til hjálparstarfs. “Við viljum gefa brunna í Mósambík.” Þær og önnur fermingarbörn Neskirkju söfnuðu 250 þúsund krónum. Tveir brunnar gefnir í Nessókn!

Lesa áfram …

Sigurður Árni Þórðarson, 14/11 2006

Pílagrímsferð til Skálholts

Í Opnu húsi miðvikudaginn 15. nóvember mun Haraldur Ólafsson, prófessor emerítus fjallar um pílagrímsferðir í Skálholt. Kaffiveitingar kl. 15. Dagskráin hefst kl. 15.30. Allir velkomnir.

Dagskrá haustið 2006 er hægt að nálgast hér.

Rúnar Reynisson, 13/11 2006

U-beygja og hagvöxtur elskunnar

U-beygja illskunnar, vöxtur elskunnar og endaleysa fyrirgefningarinnar. Þetta eru stef þeirra ritningartexta sem liggja til grundvallar íhugun okkar hér í dag.
Styrkur kristinnar trúar liggur meðal annars í því að . . .

Úr prédikun Arrna Bárðar 12. nóv. sem lesa má í heild hérna:

Örn Bárður Jónsson, 12/11 2006

Matthías Jochumsson

Afmælisbarn 11. nóvember er Matthías Jochumsson. Hann var risi í menningarlífi Íslendinga, skemmtilega frakkur guðfræðingur og eitt besta sálmaskáld þjóðarinnar bæði fyrr og síðar. Sigurður Árni skrifar um afmælisbarnið.Tími Matta er kominn!

Sigurður Árni Þórðarson, 11/11 2006

Guðný Th Bjarnar 1922-2006, Lifandi óður til lífsins

Gleðin er mikil náðargjöf, gjöf sem sumir eiga í ríkari mæli en aðrir. Guðný var rík af þeirri gjöf. Samt var líf hennar markað sorg frá bernskudögum. . .

Úr minningarorðum yfir Guðnýju sem lesa má á bak við þessa smellu:

Örn Bárður Jónsson, 10/11 2006

Kirkjan í leikskólaheimsóknum

Í þessari viku heimsótti kirkjan leikskólana Ægisborg, Skerjagarð og Grandaborg. Það er ótrúlega gaman hvað börnin eru glöð með að fá okkur í heimsókn og hvað starfsfólkið er jákvætt gagnvart kirkjustarfinu.

Lesa áfram …

Sigurvin Jónsson, 8/11 2006

Kirkjan er opin mán-fös kl 9-16
Sr. Örn Bárður Jónsson Sóknarprestur, D.M.
heimasiða/annáll - trú.is
Dr. Sigurður Árni Þórðarson Prestur
heimasíða/annáll - trú.is
Sr. Sigurvin Jónsson Æskulýðsprestur
heimasiða/annáll - trú.is









































Föstudagur

· 18.00 NeDó sport
· 18.00 AA-fundur
· 21.00 AA-fundur

Dagskrá ...