Neskirkja

 

Rússarnir komu!

Já, Rússarnir komu og engin ógn stafaði af þeim. Þvert á móti lofuðu þeir Guð og sungu undursamlega fagra litrúrgíu frá 6. öld til heiðurs Maríu guðsmóður.
Lesa áfram …

Örn Bárður Jónsson, 15/10 2006

Frambjóðandinn sem kaus þig

Úr prédikun Arnar Bárðar 15.okt.: „Nú hyllir undir fyrsta vetrardag og framundan er kosningaár. Frambjóðendur standa í biðröðum [. . . ] Lífið er pólitík, lífið snýst um málefni fólks, líf politikoi á grísku, líf borgaranna.“ Ræðuna er hægt að nálgast hér.

Örn Bárður Jónsson, 15/10 2006

Messa 15. okt. kl. 11

Kosningavetur. Lífsþrá. Undirstaða. Leikreglur. Hamingjuleið. Verkefni. Köllun. Útrás. Þessi hugtök og mörg fleiri verða í deiglu sunnudagsins í messunni þann 15.okt. kl. 11.
Lesa áfram …

Örn Bárður Jónsson, 14/10 2006

Rétttrúnaðarkirkjan í Neskirkju

Rétttrúnaðarkirkjan fagnar Verndardegi Maríu meyjar laugardaginn 14. október kl. 18 með guðsþjónustu í Neskirkju.
Lesa áfram …

Örn Bárður Jónsson, 14/10 2006

Vegurinn og lífið

Sturla Böðvarsson er samgönguráðherra og hefur vissulega umsjón með öðrum vegum en þeim sem Jesús talaði um. Hann kemur og ræðir um störf sín og lífið við eldri borgara í Opnu húsi í Neskirkju við Hagatorg, miðvikudaginn 18. október. Kaffi kl. 15.30 í safnaðarheimilinu og dagská hefst kl. 15,30. Áhugafólk um „líflega“ vegi velkomið.

Örn Bárður Jónsson, 12/10 2006

Tvær tylftir mættu á Alfa

Alfa námskeiðið hófst þriðjudaginn 11. október. Tuttugu og fjórir þáttakendur mættu fyrsta kvöldið en fleiri eru skráðir. Fyrsta kvöldið var fjallað um persónu Jesú Krists. Næst verður rætt um krossfestinguna og mikilvægi dauða hans. Enn er hægt að skrá sig og mæta næsta þriðjudag. Nánar hér.

Örn Bárður Jónsson, 11/10 2006

Tólfsporin lofa góðu!

Mánudaginn 9. okt. var haldinn fyrsti fundur nýs Tólfsporanámskeiðs og mætti góður hópur fólks. Fyrstu 4 skiptin eru fundirnir opnir. Viltu kynna þér málið? Komdu þá næsta mánudag kl. 20. Nánari upplýsingar hér.

Örn Bárður Jónsson, 10/10 2006

Haustlitaferð

Nú er það útrás! Eldri borgarar í Neskirkju fara ekki aðeins í Opið hús miðvikudaginn 11. október heldur í ferð upp í Hvalfjörð og á Akranes.

Lesa áfram …

Örn Bárður Jónsson, 10/10 2006

Þú ert draumur!

Í prédikun sunnudagsins tók Sigurður Árni flugið með tvær bækur í farteskinu og ræddi síðan um sjálfsmynd okkar og stöðu í tilverunni út frá guðspjalli dagsins, um hvíldardaginn og hefðarsætin, um drauma og veruleika og það að vera í draumalandinu sjálfu.

Viltu vita meira?

Örn Bárður Jónsson, 10/10 2006

Messa sunnudaginn 8. október kl. 11

Séra Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Allir aldurshópar safnast saman í kirkjunni kl. 11.

Lesa áfram …

Örn Bárður Jónsson, 6/10 2006

Kirkjan er opin mán-fös kl 9-16
Sr. Örn Bárður Jónsson Sóknarprestur, D.M.
heimasiða/annáll - trú.is
Dr. Sigurður Árni Þórðarson Prestur
heimasíða/annáll - trú.is
Sr. Sigurvin Jónsson Æskulýðsprestur
heimasiða/annáll - trú.is





























Athafnir
Hjónavígslur
Útfarir

Fimmtudagur

· 10.00 Foreldramorgnar
· 14.00 Barnakór - Yngri hópur
· 19.30 Graduate NeDó, Unglingastarf fyrir framhaldsskólaungmenni

Dagskrá ...