Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Ursula Árnadóttir guðfræðingur og skrifstofustjóri Neskirkju prédikar. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara síðan til sinna starfa. Umsjón með barnastarfinu hafa þau Sigurvin Jónsson, Björg Jónsdóttir og Ari Agnarsson. Kaffi, súpa og brauð á Torginu eftir messu.
Rúnar Reynisson, 10/1 2008
Á aðventunni komu til kirkju skólar hverfisins og langflestir leikskólar til að þiggja aðventustund í Neskirkju. Slíkar heimsóknir eru yndislegt tækifæri fyrir börnin til að kynnast kirkjunni sinni og okkur í Neskirkju er dýrmætt að undirbúa jólin með börnum hverfisins. Myndavél umsjónarmanns barnastarfsins var á lofti í flestum heimsóknunum og eru þær myndir nú aðgengilegar á myndasíðu barnastarfsins. Það vantar aðfinnanlega myndir af vinum okkar á Grandaborg og Skerjagarði en það fórst fyrir að taka fram myndavélina í þeim heimsóknum.
Sigurvin Jónsson, 7/1 2008
Sagan um vitringana er ekki goðsaga heldur helgisaga, sem er ætlað að efla lífsgæði fólks. Í þeim anda ættum við að lesa söguna um vitringana. Helgisögur á ekki að taka bókstaflega heldur alvarlega sagði sr. Sigurður Árni Þórðarson í stólræðu þrettándadags.
Sigurður Árni Þórðarson, 6/1 2008
Þrettándinn - 6. janúar - er lokadagur jóla. Guðspjallstextinn er um vitringana, sem vitjuðu Jesúbarnsins, og er ekki goðsaga. En hvað merkja þeir og hvað tákna gjafir þeirra? Í prédikun næsta sunnudags verður rætt um töfra, raunsæi og hlutverk helgisagna. Prestur er Sigurður Árni Þórðarson og organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Messa og barnastarf hefjast kl. 11.
Lesa áfram …
Sigurður Árni Þórðarson, 4/1 2008
Ása missti hönd en Signý nef. Helga fékk bæði eld og prins í sinni eldgöngu. Sr. Sigurður Árni Þórðarson fléttaði þjóðsögu um systur í þjóðsöngsvisku í hugleiðingu á fyrsta degi ársins 2008, sjá hér.
Sigurður Árni Þórðarson, 1/1 2008
31. desember - Gamlársdagur
Aftansöngur kl. 18.00
Trompetleikur Hringur Gretarsson. Einleikur á flautu Pamela De Sensi. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sungið verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Prédikun dagsins er hægt að nálgast hér.
1. janúar - Nýársdagur
Hátíðarmessa kl. 14.00
Kór Neskirkju syngur. Einsöngur Einar Clausen. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.
Örn Bárður Jónsson, 28/12 2007
Jósef var tengdur sínum innri manni. Hann þorði að hlusta á drauma sína og breyta um skoðun. Að hlusta á drauma er okkur nauðsyn og veröldinni lífsnauðsyn. Hugleiðing sr. Sigurðar Árna Þórðarsonar 24. desember er hægt að nálgast hér.
Sigurður Árni Þórðarson, 24/12 2007
Viltu hlusta? Smelltu þá hér!
Örn Bárður Jónsson, 17/12 2007
Hin árlega Ljósamessa sem fermingarbörn annast að hluta til verður sunnudaginn 16. des. kl. 11. Fermingarbörn lesa spádóma um komu Krists og tendra ljós um alla kirkju og breiða ljósfaðm um fjölskyldu og söfnuð. Fátt er betra til undirbúnings jóla en Ljósamessa á aðventu! Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar. Kertasala Hjálparstarfs kirkjunnar eftir messu.
Súpa og brauð, kaffi og spjall. Velmomin/n!!
Örn Bárður Jónsson, 15/12 2007
Pistill eftir sr. Örn Bárð sem birtist í Vesturbæjarblaðinu 14. des. 2007 er á vefnum og mikið lesinn. Hann fjallar um kristinn trúararf og verðveislu hans. Þú finnur pistilinn hér.
Örn Bárður Jónsson, 15/12 2007