Dr. Guðrún Kvaran prófessor, orðabókaritsjóri og formaður Biblíuþýðingarnefndar flytur erindi í Opnu húsi n.k. miðvikudag, 7. nóvember, sem hún nefniir: Kirkjubiblía, biblíuhefð og tryggðin við frumtextanna. Kaffiveitingar á Torginu. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15.
Rúnar Reynisson, 6/11 2007
Í messunni sunnudaginn 4. nóvember verður íhuguð himinvist og hjálp Guðs. Á allra heilagra messu er gott að koma í kirkju, minnast látinna ástvina, biðja og heyra boðskap vonar. Sr. Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Lesa áfram …
Sigurður Árni Þórðarson, 2/11 2007
Í hverri viku ársins er fyrirbænamessa á miðvikudögum kl. 12.15. Messan tekur um 20 mínútur. Við upphaf er leikið á orgel og klukkum hringt. Síðan er sunginn sálmur, lesinn ritningartexti og prestur flytur örhugvekju. Eftir fyrirbænir er altarisganga.
Lesa áfram …
Sigurður Árni Þórðarson, 30/10 2007
Í hverri viku ársins er fyrirbænamessa á miðvikudögum kl. 12.15. Messan tekur um 20 mínútur. Við upphaf er leikið á orgel og klukkum hringt. Síðan er sunginn sálmur, lesinn ritningartexti og prestur flytur örhugvekju. Eftir fyrirbænir er altarisganga. Það eru lífsgæði að ganga í guðshús í miðri viku og njóta himinveislu.
Lesa áfram …
Sigurður Árni Þórðarson, 30/10 2007
Í Opnu húsi miðvikudaginn 31. október mun Síra Ágúst Sigurðsson, sem nýkominn er úr siglingu, segir frá Efesus og Húsi Maríu meyjar á Næturgalafjallinu og sýnir myndir úr ferðalaginu. Í upphafi er boðið upp á kaffiveitingar á Torginu. Opið hús er alla miðvikudag kl. 15.
Rúnar Reynisson, 30/10 2007
Þriðjudaginn 30. október mun æskulýðsfélag Neskirkju og Dómkirkju taka þátt í verkefninu B+ þar sem öll æskulýðsfélög á landinu hjálpast að við að lesa Biblíu 21. aldar á einni viku. Upplesturinn mun hefjast í safnaðarheimili Neskirkju kl 17:00 og standa fram eftir kvöldi. NeDó mun nota tækifærið og safna fyrir utanlandsferð sem fyrirhuguð er í ágúst á næsta ári. Allir eru velkomnir að koma og hlusta á Guðs orð undir rjúkandi kaffibolla og styðja við unglingastarfið.
Sigurvin Jónsson, 29/10 2007
Á siðbótardegi, sunnudaginn 28. október mun sr. Frank M. Halldórsson prédika í Neskirkju. Hann er bæði kunnugur prédikunarstólnum og aðstæðum kirkjunnar því hann þjónaði Nessöfnuði í 40 ár.
Lesa áfram …
Sigurður Árni Þórðarson, 25/10 2007
Í Opnu húsi miðvikudaginn 24. október mun Guðrún Helgadóttir rithöfundur talar um æsku og elli og les úr verkum sínum. Opna húsið byrjar kl. 15. með kaffiveitingum á Torginu. Umsjón með starfinu hefur Hjörtur Pálsson.
Rúnar Reynisson, 24/10 2007
Foreldramorgnar er alla fimmtudaga kl. 10 til 12. Fjörugt samfélag og mörg börn! Spjall, samfélag og gott kaffi.
Rúnar Reynisson, 24/10 2007
Nú á sunnudaginn lauk landsmóti æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) en um helgina hittumst rúmlega þrjúhundruð unglingar á aldrinum 13 ára til 18 ára ásamt leiðtogum á Hvammstanga. NeDó, æskulýðsfélag kirkjunnar, var þar með hóp af ungmennum sem sýndu kirkjunni mikinn sóma með hátterni sínu en svo vel gekk mótið að hvergi bar skugga á og gleðin skein úr hverju andliti. Neskirkjumyndavélin var mikið notuð og hægt er að nálgast myndasafn á myndasíðu barnastarfsins.
Lesa áfram …
Sigurvin Jónsson, 22/10 2007