Neskirkja

 

Saltfiskmáltíð með Ingibjörgu formanni

Ekki missa af síðasta tækifærinu til að snæða suðrænan saltfisk á föstunni á Kaffitorgi Neskirkju, föstudaginn 14. mars kl. 12-13. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður sóknarnefndar ávarpar matargesti. Enda þótt Ingibjörg sé ekki formaður að hætti Þuríðar formanns er hún samt formaður á skipi með stórri áhöfn, nefnilega kirkjuskipi, sem hefur innanborðs megin hluta íbúa Vesturbæjar. Verið velkomin!

Lesa áfram …

Örn Bárður Jónsson, 13/3 2008

Opið hús

Í Opnu húsi miðvikudaginn 12. mars verður farið í listreisu að Kjarvalsstöðum þar sem skoðuð verður sýning á verkum færeyska málarans Sámal Joensen-Mikines og eftir atvikum aðrar sýningar hússins. Stundin byrjar með kaffiveitingum á Torginu kl. 15 en síðan verður farið með rútu að Kjarvalsstöðum. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15. Sjá vor dagskrá hér!

Rúnar Reynisson, 11/3 2008

Messa, mæðgnaskírn og Maríuminning kl. 11

Já, á sunnudaginn verður óvenjuleg messa því þá verða mæðgur skírðar, væntanlegt fermingarbarn og móðir þess. Hefur slíkt gerst áður á Boðunardegi Maríu í íslenskri kirkju? Séra Örn Bárður Jónsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Hægt er að hlusta á ræðuna undir þessari smellu.
Lesa áfram …

Örn Bárður Jónsson, 7/3 2008

Saltfiskmáltíð og heimsókn læknis og kylfings

Lífið er saltfiskur. Föstudaginn 7. mars kl. 12-13 verður boðið upp á saltfiskmáltíð í hádeginu á Kaffitorgi Neskirkju í tilefni föstunnar. Gestur að þessu sinni verður Jón Þ Hallgrímsson, læknir og kylfingur með meiru. Mun hann m.a. segja frá bernsku sinni í Vesturbænum.
Lesa áfram …

Örn Bárður Jónsson, 6/3 2008

Vel heppnaður æskulýðsdagur!

Við erum glöð og södd eftir æskulýðsdaginn í Neskirkju en þar var borin fram rúmlega 6 metra súkkulaðikaka og ljúffeng súpa elduð af unglingahópnum. Fyrir messu var frumsýnd stuttmyndin ,,Davíð var lítill drengur” en hana má nú nálgast á myndasvæði barnastarfsins. Prédikunina, sem umsjónarmaður barna- og unglingastarfsins flutti, má lesa á annál hans. Sérstakar þakkir fær Barbara trúður sem gladdi hjörtu barna jafnt sem fullorðinna með hlýju sinni og gleði.

Sigurvin Jónsson, 2/3 2008

Lengsta súkkulaðikaka Vesturbæjar bökuð

Unglingahópur Neskirkju vakti síðastliðna nótt og bakaði tæplega sjö metra af dýrindis skúffuköku. Hópurinn myndarlegi safnaði áheitum til styrktar utanlandsferðar í sumar og kann miklar þakkir fyrir þá sem stutt hafa framtakið. Öllum er boðið að koma og smakka á kökunni eftir messu kl. 11 á æskulýðsdaginn 02. mars.

Sigurvin Jónsson, 1/3 2008

Æskulýðsdagur í Neskirkju

Sunnudagurinn 02. mars er æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar og þá verður haldin barna og unglingamessa kl. 11:00. Barbara trúður kemur í heimsókn og eftir messu verður boðið uppá lengstu súkkulaðiköku Vesturbæjar. Tíu mínútur fyrir messu verður sýnd stuttmynd Krakkaklúbbsins og ungmenni úr NeDó mynda messuhóp. Börn og unglingar eru sérstaklega boðin velkominn.

Lesa áfram …

Sigurvin Jónsson, 1/3 2008

Kyrrðardagur 1. mars

Hefur þú áhuga á andlegri heilbrigði þinni? Kyrrðardagar eru haldnir reglulega í Neskirkju við Hagatorg og henta sálardekri vel. Næsti kyrrðardagurinn verður laugardaginn 1. mars. Sigríður Hrönn Sigurðardóttir, guðfræðingur og sérfræðingur í kristinni íhugun, sér um hugleiðingar. Skráning í s. 5111560.

Lesa áfram …

Sigurður Árni Þórðarson, 28/2 2008

Saltfiskur á föstu-dögum

Lífið er saltfiskur. Föstudaginn 29. febrúar kl. 12-13 verður boðið upp á saltfiskmáltíð í hádeginu á Kaffitorgi Neskirkju í tilefni föstunnar. Gestur að þessu sinni verður Valur Valsson, fv. bankastjóri og yfirmaður Frímúrarareglunnar á Íslandi. Mun hann m.a. segja frá bernsku sinni í Vesturbænum, kynnum af sr. Jóni Thorarensen og Neskirkju.

Lesa áfram …

Örn Bárður Jónsson, 28/2 2008

Foreldramorgnar

Fimmtudaginn 28. febrúar mun Herdís Storgaard koma í heimsókn á foreldramorgun og fjalla um slysavarnir barna. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10 -12. Sjá dagskrá foreldramorgna hér!

Rúnar Reynisson, 27/2 2008

Kirkjan er opin mán-fös kl 9-16
Sr. Örn Bárður Jónsson Sóknarprestur, D.M.
heimasiða/annáll - trú.is
Dr. Sigurður Árni Þórðarson Prestur
heimasíða/annáll - trú.is
Sr. Sigurvin Jónsson Æskulýðsprestur
heimasiða/annáll - trú.is









































Föstudagur

· 18.00 NeDó sport
· 18.00 AA-fundur
· 21.00 AA-fundur

Dagskrá ...