Opið hús miðvikudaginn 22. febrúar kl. 15. Guðrún Ingólfsdóttir varði nýlega doktorsritgerð sína um handrit á 18. öld og viðhorf höfunda þeirra, þriggja karla og einnar konu. Guðrún segir frá þessum handritum og að þekkingarleit fólks á þessum tíma hafi verið skipulegri en talið hefur verið. Hvað stýrði og hver var sérleikur hins kvenlega? Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Rúnar Reynisson, 21/2 2012
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
Rúnar Reynisson, 17/2 2012
Opið hús miðvikudaginn 15. febrúar kl. 15. Séra Jakob Ágsúst Hjálmarsson, fv. sóknarprestur við Dómkirkjuna fjallar um írska arfinn í þjóðmenningu íslendinga út frá sögunni um Melkorku í Laxdælu. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu.
Rúnar Reynisson, 14/2 2012
Hvað hlutverki þjónar Biblían og hvernig getur maður lesið hana? Það verður viðfangsefni í prédikun á biblíudeginum, 12. febrúar. Messa og barnastarf Neskirkju hefst kl. 11. Sameiginlegt upphaf allra aldurshópa í messunni. Hljómur, kór eldri borgara í Neskirkju, leiðir safnaðarsöng. Organisti Magnús Ragnarsson. Sigurður Árni prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Kirkjan er allra og allir velkomnir.
Sigurður Árni Þórðarson, 11/2 2012
Opið hús miðvikudaginn 8. febrúar kl. 15. Heimsókn í Alþingi, húsið sýnt og starf Alþingsins verður kynnt. Á undan ferð verður hefðbundið kaffi á Torginu í Neskirkju og síðan brottför með rútu kl. 15.20. Komið til baka að Neskirkju um kl. 16.30.
Rúnar Reynisson, 7/2 2012
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Ræðuna er hægt að nálgast hér.
Rúnar Reynisson, 3/2 2012
Fullt er orðið á uppeldisnámskeið Helgu Arndfríðar Uppeldi sem virkar: Færni til framtíðar en námskeiðið hefur verið haldið um árabil og reynst uppalendum vel. Námskeiðið hefst í næstu viku og er kennt á miðvikudögum kl. 17-19.
Rúnar Reynisson, 1/2 2012
Opið hús miðvikudaginn 1. febrúar kl. 15. Helgi Ágústsson fyrrverandi sendiherra rifjar upp árin í utanríkisþjónustunni. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu.
Rúnar Reynisson, 31/1 2012
Ummyndun – það er eiginlega lykilsaga um þig og mig, kirkju, þjóðfélag og heim. Það er sagan um að Guð elskar og umbreytir - til heilla. Að baki þessari smellu er hægt að lesa og heyra prédikun á síðasta sunnudegi eftir þrettánda, 29. janúar, 2012. Textinn var um ummyndunarfrásöguna.
Sigurður Árni Þórðarson, 29/1 2012
Hvað merkir ummyndun í okkar samfélagslega og kirkjulega samhengi? Verður til íhugunar í prédikun á morgun í Neskirkju. Hvernig væri að bregða sér í kirku og taka þátt í umbreytingunni? Sjá ofurlitla forhugleiðingu að baki þessari smellu. Barnastarfið er á sama tíma og messan og svo verða veitingar og samfélag á Torginu eftir messu. Allir velkomnir.
Sigurður Árni Þórðarson, 28/1 2012