LÆK, Leiklistarfélag æskulýðsfélaga kirkjunnar, sem hefur aðsetur í Neskirkju hefur unnið aðventudagatal með 24 ,,gluggum” þar sem ungmenni deila jólaupplifun sinni. Jólin fyrir mér eru …. Dagatalið birtist daglega í smáglugga hér að ofan. Njótum aðventunnar saman.
Opið hús miðvikudaginn 30. nóvember. Á aðventutónleikum kórs Neskirkju þriðjudaginn 6. desember verða flutt tvö verk, Magnificat eftir organista Neskirkju, Steingrím Þórhallsson og Magnificat J.S. Bach. Steingrímur skýrir verkin með tali og tónum. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15. og byrjar með kaffiveitingur á Torginu.
Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11 og sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Einsöngur Ragnhildur Þórhallsdóttir. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Kór Neskirkju verður með kökubasar eftir messu. Samfélag og veitingar á Torginu. Ræðu Arnar Bárðar er hægt að hlusta á á bak við þessa smellu.
Opið hús miðvikudaginn 23. nóvember. Grieg er þekktasta tónskáld Norðmanna. Áslaug Gunnarsdóttir mun skýra og spila sónötu hans í E-moll. Áslaug lærði píanóleik á Íslandi og í Þýskalandi og kennir píanóleik. Hún hefur boðist til að koma reglulega í opið hús til að kynna píanótónlist. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15 og hefst með kaffiveitingum á Torginu. Sjá haust dagskrá.
Hvað sleit þér mest í tengslum við ástvini þína, foreldra, börn, maka, vini? Hvað hafði dýpst og sterkust áhrif á tilfinningar þínar og líðan? Hver er krísan - hver er lausnin? Prédikun Sigurðar Árna síðasta sunnudag kirkjuársins, 21. nóvember, er að baki smellunni.
Síðasti sunnudagur kirkjuársins. Messa og barnastarf kl. 11 og sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Guðspjallið fjallar um dóm, krisis, og prédikarinn fjallar um þá krísu. Messuþjónar aðstoða í athöfninni. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
LÆK (leiklistarfélag æskulýðsfélaga kirkjunnar) fékk það verkefni að bera fram gleðitexta í Bænarý guðsþjónustu síðastliðinn föstudag. Gleði skal deila og því deilum við gleðinni hér.
Opið hús miðvikudaginn 16. nóvember.Ólafur Davíðsson fyrrum ráðuneytisstjóri og sendiherra lauk starfsævinni sem sendiherra í Berlín. Áður starfaði hann sem ráðuneytisstjóri í 13 ár. Trúnaðarstörfin og samskipti við fulltrúa erlendra þjóða, hvernig ganga þau fyrir sig? Vangaveltur í kjölfar viðburðarríkrar starfsævi. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15 og hefst með kaffiveitingum á Torginu.