Myndir af fermingarhópum vorsins 2012
Smellið hér til að sjá myndir.
Örn Bárður Jónsson, 31/3 2012
Fermingar vorið 2012 verða sem hér segir:
Laugardaginn 31. mars kl. 11 og 13.30
Annan í páskum 9. apríl kl. 11
Sunnudaginn 15. apríl kl. 13.30
Eina fermingin sem fellur á hefðbundinn messutíma er sú sem verður á 2. í páskum. Hefðbundnar safnaðarmessu eru alla sunnudag kl. 11.
Örn Bárður Jónsson, 30/3 2012
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór, Barnakór og Stúlknakór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
Rúnar Reynisson, 30/3 2012
Næst komandi sunnudag 1. apríl, sem er pálmasunnudagur og vígsludagur kirkjunnar, verður gengið til kirkju frá tveim stöðum til að halda upp á þennan hátíðisdag. Safnast verður saman annars vegar í Þormóðsstaðarvör við vesturenda flugbrautar og hins vegar frá Grandaskóla. Lagt verður af stað frá þessum stöðum kl. 10.30. Áætlað er að gangan taki um 20 mínútur. Í stað pálmagreina munum við veifa birkigreinum sem er góður vorboði. Látið endilega sjá ykkur á 55 ára víglsuafmæli kirkjunnar.
Rúnar Reynisson, 30/3 2012
Opið hús miðvikudaginn 28. mars kl. 15. Kristján Þór Sverrisson kemur í heimsókn segir frá Kristniboðssambandinu. Íslenskir kristniboðar starfa í Afríkulöndunum Eþíópíu og Keníu og í Japan. Þar vinna þeir að alhliða fræðslu, hjúkrun, heilsuvernd og margs konar þróunarverkefnum svo sem umbótum í landbúnaði, verndun vatnsbóla og fleiru. Á tímum hungursneyðar taka þeir þátt í víðtæku hjálparstarfi og matvæladreifingu. Samhliða þessu er trúin á Jesú Krist boðuð. Kaffiveitngar í upphafi á Torginu.
Rúnar Reynisson, 27/3 2012

Prúðbúin ungmenni fylltu sali Neskirkju síðastliðinn þriðjudag þegar NeDó hélt árlega uppskeruhátíð sína. Skemmtiatriði kvöldsins voru með veglegasta móti og Kristján Ágúst Kjartansson guðfræðinemi sá um veislustjórn. Minningar að myndast í Neskirkju!
Lesa áfram …
Rúnar Reynisson, 26/3 2012
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
Rúnar Reynisson, 23/3 2012
Saltfiskdagar halda áfram í Neskirkju. Föstudaginn 22. verður borinn fram Grískur saltfiskréttur og svo auðvita fiskisaga. Föstudaginn 30. mars er síðan síðasti saltfiskdagur á þessari föstu.
Rúnar Reynisson, 22/3 2012
Opið hús kl. 15. Jón Ármann Héðinsson talar um lífið, trúna og störfin. Jón Ármann ólst upp á Húsavík, lærði viðskiptafræði og var alþingismaður um árabil. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Rúnar Reynisson, 20/3 2012
Messa kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Stjórnandi Gunnsteinn Ólafsson. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Ræðu dagsins er hægt að hlusta á hér.
Rúnar Reynisson, 15/3 2012
Kirkjan er opin mán-fös kl 9-16
Sr. Örn Bárður Jónsson Sóknarprestur, D.M.
heimasiða/annáll - trú.is
Dr. Sigurður Árni Þórðarson Prestur
heimasíða/annáll - trú.is
Sr. Sigurvin Jónsson Æskulýðsprestur
heimasiða/annáll - trú.is




















· 18.00 NeDó sport
· 18.00 AA-fundur
· 21.00 AA-fundur
Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · Kerfi ![]()