Neskirkja

 

Trúa hverjum og fylgja hverjum?

Kristin kirkja á að fylgja Jesú Kristi en ekki öfugt. Þegar stofnun, siður eða kenning hafa forgang er alltaf hætta á Jesús Kristur sé skilinn í ljósi þeirra en ekki öfugt. Prédikun Sigurðar Árna á öðrum sunnudegi eftir páska, 22. apríl, er að baki þessari smellu.

Sigurður Árni Þórðarson, 23/4 2012

Góði hirðirinn og aðalsafnaðarfundur

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verður haldinn eftir messu og fundur hefst kl. 12, 30.

Sigurður Árni Þórðarson, 21/4 2012

Að láta ljós sitt skína - Bjartsýnisbusl

Okkur í NeDó, unglingastarfi Neskirkju og Dómkirkju hefur löngum fundist það bjartsýni að halda sumardaginn fyrsta í miðjum aprílmánuði. Þeirri bjartsýni fögnuðum við í Vesturbæjarlauginni í morgun sem var í umsjá unglingaleiðtoga úr NeDó. Katrín Helga stýrði dagskrá, Daníel Ágúst var með hugleiðingu, Heiða, Þorbjörg og Helena sungu og Jökull og Guðný sáu um ritningalestra. Að lokinn helgistund stýrðu NeDó leiðtogar leikjum í lauginni. Sannkallað Bjartsýnisbusl.

Rúnar Reynisson, 19/4 2012

Fríður hópur fermingabarna í Neskirkju.


Prestar og starfsfólk Neskirkju er sannarlega stollt af fermingarungmennum þessa vors og hér má sjá myndir af þessum fríða flokki.
Lesa áfram …

Rúnar Reynisson, 17/4 2012

Messa 15. apríl kl. 11

Messa og barnastarf kl. 11.

Háskólakórinn syngur.

Örn Bárður þjónar. Ræðuna er hægt að nálgast hér.

Guðspjallið fjallar um efann.

Tómas, Avatar og efinn.

Velkomin/n!

Fermingarmessa kl. 13.30, Örn og Sigurður þjóna. Síðasta fermingarmessa vorsins.

Örn Bárður Jónsson, 14/4 2012

Herdís Þorvaldsdóttir í Opnu húsi

Opið hús miðvikudaginn 11. apríl kl. 15. Herdís Þorvaldsdóttir er leikkona og baráttukona. Hún hefur markað djúp spor í leikhúsheimi Íslendinga. Hún hefur einnig beitt sér fyrir landvernd og ábyrgð í umgengni við landið. Herdís ræðir um vorið og flytur vorefni. Opið hús er alla miðvikudaga og byrjar á Torginu með kaffiveitingum.

Rúnar Reynisson, 10/4 2012

Páskadagur

Hátíðarmessa kl. 8.00. Hátíðartón. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Prédikun Arnar er hægt að nálgast hér.

Morgunverður og páskahlátur eftir messu.

Upprisutónleikar kl. 10.00. Steingrímur Þórhallsson organisti flytur tónlist.

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Stundin er í umsjón Sigurvins Jónssonar æskulýðsprests og annars starfsfólks barnastarfsins. Fermdur verður Gunnsteinn Magnússon frá Lúxemborg. Prestar sr. Örn Bárður Jónsson og sr. Sigurður Árni Þórðarson. Páskaeggjaleit að lokinni guðsþjónustu.

Rúnar Reynisson, 6/4 2012

Hver drap Jesú?

Prédikun sr. Sigurvins Jónssonar á föstudaginn langa.

JDC Það er kaldhæðnislegt að sú beitta ádeila á valdsbeitingu sem birtist í Píslarsögunni hafi verið beitt sem valdatæki. Biblían hefur verið og er notuð sem valdatæki og vopn, jafnvel í okkar kirkju. Kirkjan er valdastofnum og hún gerir tilkall til valds, m.a. á grundvelli þeirrar stöðu sem að píslarsagan hefur í okkar menningu. Í umgengni okkar við trúararfinn þurfum við sífellt að vera á varðbergi gagnvart því hvernig við sem kirkja, beitum valdi meðvitað og ómeðvitað. Lesa á trú.is

Sigurvin Jónsson, 6/4 2012

Skírdagskvöld

Messa kl. 21.00. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists. Einleikur á gítar Kristófer Kvaran. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.

Vaktu með Kristi. Vaka með unglingum af höfuðborgarsvæðinu hefst í messunni og stendur til morguns.

Rúnar Reynisson, 3/4 2012

Föstudagurinn langi

Guðsþjónusta kl. 11.00. Píslarsagan lesin. Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir syngur einsöng. Pamela de Sensi flytur Requiem nýtt verk fyrir einleiksflautu eftir organista kirkjunnar. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson.

Rúnar Reynisson, 3/4 2012

Kirkjan er opin mán-fös kl 9-16
Sr. Örn Bárður Jónsson Sóknarprestur, D.M.
heimasiða/annáll - trú.is
Dr. Sigurður Árni Þórðarson Prestur
heimasíða/annáll - trú.is
Sr. Sigurvin Jónsson Æskulýðsprestur
heimasiða/annáll - trú.is









































Föstudagur

· 18.00 NeDó sport
· 18.00 AA-fundur
· 21.00 AA-fundur

Dagskrá ...