Sr. Magnús messar
Nýjabrum verður á messustílnum í Neskirkju sunnudaginn 29. október. Nýr prestur messar og nýr kór syngur! Organistinn er sá sami og söfnuðurinn væntanlega líka.
Sigurður Árni Þórðarson, 27/10 2006
Nýjabrum verður á messustílnum í Neskirkju sunnudaginn 29. október. Nýr prestur messar og nýr kór syngur! Organistinn er sá sami og söfnuðurinn væntanlega líka.
Sigurður Árni Þórðarson, 27/10 2006
Nú hafa hvalveiðimenn tekið gleði sína á ný. Á sama tíma skiptast menn í tvö horn í afstöðunni til hvalveiða. Byssan var hreinsuð og fægð, hvalbáturinn gerður í stand og svo var haldið á miðin og fyrsti hvalurinn tekinn eins og í gangster í kúrekamynd: Upp með bægsli! Búmm! Og heimsbyggðin fylgdist með og hneykslaðist.
Örn Bárður Jónsson, 26/10 2006
Steingrímur Þórhallsson, organisti Neskirkju stjórnar för í Opnu húsi miðvikudaginn 25. október. Kaffi kl. 15.00 í safnaðarheimilinu og dagská hefst kl. 15.30. Allir velkomnir.
Rúnar Reynisson, 25/10 2006
Ármann Snævarr, fyrrum lagaprófessor, sagði glaður þegar hann fór úr Neskirkju: Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri lagagrein nefnda í prédikun! En þegar rætt er um guðlast koma lög við sögu, en líka gildi og þó helst trú. Guðlastsprédikunin er undir þessari smellu!
Sigurður Árni Þórðarson, 23/10 2006
Guð gleymir okkur aldrei, hann fær aldrei alzheimer eða elliglöp af neinu tagi. [...] En getur hann þá gleymt einhverju? Já, hann getur gleymt. Úr prédikun Arnar Bárðar í Ísafjarðarkirkju 22. okt. 2006 sem lesa má í heild með því að smella hér:
Örn Bárður Jónsson, 23/10 2006
Nýr prestur og guðlast í messunni 22. október! Sr. Magnús Erlingsson kemur til hálfs mánaðar þjónustu í Neskirkju og þjónar við altari næsta sunnudag. En guðspjall dagsins fjallar um guðlast.
Sigurður Árni Þórðarson, 19/10 2006
Næstu helgi munu 17 börn úr æskulýðsstarfi Neskirkju og Dómkirkju fara á landsmót Æskulýðsfélaga í Vatnaskógi.
Sigurvin Jónsson, 18/10 2006
Sturla Böðvarsson er samgönguráðherra og hefur vissulega umsjón með öðrum vegum en þeim sem Jesús talaði um. Hann kemur og ræðir um störf sín og lífið við eldri borgara í Opnu húsi í Neskirkju við Hagatorg, miðvikudaginn 18. október.
Örn Bárður Jónsson, 16/10 2006
Sóknarprestarnir Magnús Erlingsson á Ísafirði og Örn Bárður Jónsson í Neskirkju munu víxla embættum frá 19. -30. okt. Magnús mun sinna allri almennri prestsþjónustu þennan tíma og messa í Neskirkju sunnudaginn 29. okt. Sjá hér frétt af vef blaðsins Bæjarins besta á Ísafirði.
Örn Bárður Jónsson, 15/10 2006
Já, Rússarnir komu og engin ógn stafaði af þeim. Þvert á móti lofuðu þeir Guð og sungu undursamlega fagra litrúrgíu frá 6. öld til heiðurs Maríu guðsmóður.
Lesa áfram …
Örn Bárður Jónsson, 15/10 2006
Kirkjan er opin mán-fös kl 9-16
Sr. Örn Bárður Jónsson Sóknarprestur, D.M.
heimasiða/annáll - trú.is
Dr. Sigurður Árni Þórðarson Prestur
heimasíða/annáll - trú.is
Sr. Sigurvin Jónsson Æskulýðsprestur
heimasiða/annáll - trú.is




















· 18.00 NeDó sport
· 18.00 AA-fundur
· 21.00 AA-fundur
Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · Kerfi ![]()