Neskirkja

 

Fréttir flokkaðar sem ‘Barna og unglingastarf’

Myndir af fermingarhópum vorsins 2012

Smellið hér til að sjá myndir.

Örn Bárður Jónsson · 31. mars 2012

Fremingarmessur vorið 2012

Fermingar vorið 2012 verða sem hér segir:

Laugardaginn 31. mars kl. 11 og 13.30
Annan í páskum 9. apríl kl. 11

Sunnudaginn 15. apríl kl. 13.30

Eina fermingin sem fellur á hefðbundinn messutíma er sú sem verður á 2. í páskum. Hefðbundnar safnaðarmessu eru alla sunnudag kl. 11.

Örn Bárður Jónsson · 30. mars 2012

Gleðitextar

LÆK (leiklistarfélag æskulýðsfélaga kirkjunnar) fékk það verkefni að bera fram gleðitexta í Bænarý guðsþjónustu síðastliðinn föstudag. Gleði skal deila og því deilum við gleðinni hér.

Rúnar Reynisson · 16. nóvember 2011

Viðtöl við drauga.

Ef þú værir enn á lífi … hvernig myndir þú nota líf þitt. TTT krakkarnir Erla, Ella og Ýmir svöruðu spurningunni í Halloween myndbandi BaUN.

Rúnar Reynisson · 13. nóvember 2011

Vel heppnað Landsmót ÆSKÞ

Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar var haldið á Selfossi sl helgi og tóku 500 ungmenni og leiðtogar þátt í mótinu. Markmið mótsins að þessu sinni var að safna fé til styrktar börnum sem misstu foreldri í náttúruhamförunum í Japan í mars. Frá Neskirkju og Dómkirkju fóru um 20 þátttakendur auk NeDó leiðtoga sem unnu sjálfboðavinnu á mótinu. Gunnar Óli Markússon sóknarnefndarmaður setti saman svipmyndir af nýafstöðnu móti.

Rúnar Reynisson · 2. nóvember 2011

Djöfullinn og Andskotans helvíti

Á nýafstöðnu Landsmóti ÆSKÞ var fræðsla í höndum Neskirkjufólks. Sigurvin Jónsson æskulýðsprestur fræddi unglinga á mótinu um andskotann, guðfræðingurinn og sóknarnefndarmaðurinn Davíð Þór Jónsson fjallaði um ritgerð sína Andskotans helvíti og Toshiki Toma prestur innflytjenda sagði frá aðstæðum barna í Japan eftir náttúruhamfarir marsmánaðar.

Hluti II-IV Lesa áfram …

Rúnar Reynisson · 1. nóvember 2011

NeDó á Landsmót ÆSKÞ

Æskulýðsfélag Neskirkju og Dómkirkju tekur næstu helgi þátt í stærsta viðburði ársins í kristilegu æskulýðsstarfi, Landsmóti ÆSKÞ. Mótið er í ár haldið á Selfossi og eru 500 þátttakendur skráðir á mótið, þar af um 30 ungmenni og leiðtogar frá NeDó. Fyrir mótið sömdu þrjár hæfileikaríkar stúlkur dans sem tekin var upp og verður sýndur á mótinu. Fylgjast má með mótinu á heimasíðu ÆSKÞ.

Rúnar Reynisson · 26. október 2011

Sögur af…

ÆSKR stendur fyrir leiðtogafræðslu fyrir ungmenni á framhaldsskóla og háskólaaldri og s.l. miðvikudag fræddi æskulýðsprestur Neskirkju um sögur. Áhugasamir geta hlustað á hluta af fræðslunni. Hluti I: Sögur - barnæskusögur, afrekssögur og fjölskyldusögur; Hluti II: Epík og mýta; Hluti III: Sjö tegundir sagna & Hluti IV: Dæmi um sjö tegundir sagna.


Lesa áfram …

Rúnar Reynisson · 1. október 2011

Græn, sanngjörn og hamingjusöm.

Í júlímánuði fór hópur ungmenna frá Neskirkju í ungmennaskipti til bæjarins Langerwehe í Þýskalandi. Ungmennaskiptin voru skipulögð af íslenskum presti, Sjöfn Þór Müller, sem búsett er í þýskalandi og hélt Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum utan um íslenska hópinn. Frá Neskirkju fóru tveir leiðtogar, þeir Guðjón Andri Reynisson og Gunnar Óli Markússon, og fimm þátttakendur. Yfirskrift ferðarinnar var Be green, be fair, be happy og umfjöllunarefnið snéri að náttúruvernd, sanngjörnum viðskiptaháttum og hvernig megi breyta heiminum til góðs með gleði í hjarta.

Lesa áfram …

Rúnar Reynisson · 28. september 2011

Barnastarf Neskirkju hefst í næstu viku ;)


Barnastarf Neskirkju hefst n.k. sunnudag með Sunnudagaskóla kirkjunnar og kirkjustarfið hefst í vikunni á eftir.

Dagskrá BaUn 2011-2012

Lesa áfram …

Rúnar Reynisson · 1. september 2011

     

    Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · Kerfi RSS