Neskirkja

 

Kór Neskirkju – raddpróf

Kór Neskirkju getur bætt við sig nokkrum áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem vilja taka þátt í fjölbreyttu kórastarfi. Sækjumst sérstaklega eftir nokkrum bössum og sóprönum sem hafa einhverja söngreynslu eða mikinn metnað. Við hverjum þó alla áhugasama til þess að hafa samband. Kunnátta í nótnalestri er æskileg en þó ekki skilyrði fyrir gott fólk.

Raddpróf verða í Neskirkju miðvikudaginn 1. september kl. 16:00 - 18:30 eða eftir samkomulagi.

Aðalæfing kórsins er á miðvikudögum frá 19:00 - 22:00 ásamt einum laugardagsmorgni í mánuði. Að hausti er æfingahelgi í safnaðarheimili kirkjunnar og önnur að vori en þá er farið eitthvað út fyrir Höfuðborgarsvæðið.

Aðalverkefni ársins er Magnificat eftir Bach sem flutt verður í desember 2010 en einnig er stefnt að mörgu skemmtilegu í vor, m.a. kórferð innanlands eða jafnvel, ef Guð og menn lofa, til nágranna okkar í Færeyjum.

Nánari upplýsingar hjá steini@neskirkja.is eða í síma 896-8192.

Rúnar Reynisson, 28/8 2010 kl. 10.46

     

    Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · Kerfi RSS