Neskirkja

 

Fermingarfræðslan að hefjast!

Sumarnámskeið hefst með sameiginlegum fundi fermingarbarna og foreldra þeirra eða forsjármanna í Neskirkju sunnudaginn 15. ágúst kl. 20. Fundað verður í kirkjunni. Þar verður efni og fræðslufyrirkomulag kynnt. Farið verður einnig yfir samvinnu kirkju og heimilis á þessum undirbúningsvetri. Upplýsingar verða afhentar um efni og mikilvægar dagsetningar.

Kennsla hefst síðan daginn eftir, mánudaginn 16. ágúst kl. 10 og stendur til kl. 16 fram á föstudag. Fræðslan verður í safnaðarheimilinu og kirkjunni. Námskeiðinu lýkur með messu sunnudaginn 22. ágúst kl. 11 en þá ganga fermingarbörnin til altaris í fyrsta sinn og þá með foreldrum sínum.

Rúnar Reynisson, 10/8 2010 kl. 13.11

     

    Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · Kerfi RSS