Neskirkja

 

Messa og guðlast

Nýr prestur og guðlast í messunni 22. október! Sr. Magnús Erlingsson kemur til hálfs mánaðar þjónustu í Neskirkju og þjónar við altari næsta sunnudag. En guðspjall dagsins fjallar um guðlast.

Neskirkja/Sigurður ÁrniNýr prestur og guðlast í messunni 22. október! Sr. Magnús Erlingsson kemur til hálfs mánaðar þjónustu í Neskirkju og þjónar við altari næsta sunnudag. En guðspjall dagsins fjallar um guðlast. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.

Í messunni þjóna einnig sr. Toshiki Thoma og Hanna Johannessen. Félagar í Kór Neskirkju syngja og organisti er Steingrímur Þórhallsson. Meðhjálpari er Úrsúla Árnadóttir.

Barnastarfið byrjar í kirkjunni og börnin fara svo í safnaðarheimilið. Eftir messu verður messukaffi og fermingarbörnin vinna verkefni. Allir velkomnir til að taka þátt í messu og samfélagi. Guðlastið verður rætt en reynt að forðast iðkun þess!

Sigurður Árni Þórðarson, 19/10 2006 kl. 12.29

     

    Neskirkja við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 511 1560 , fax 511 1564 · Kerfi RSS